Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1932
1932
1932

Við erlent kaupslag orðin frí

Hljóðbrot0:00

Lag Fljúga hvítu fiðrildin

VVið erlent kaupslag orðin fríafleiðingin slíkað verslun öll fer eftir þvíhvar ertu' í pólitík.

Glúmur Gylfason · 1932

Heimildir og samhengi

13. kafli Samvinnu á Suðurlandi, eftir Guðjón Friðriksson, sem er í II. bindi, er um sögu (samvinnu)verslunar í Vestur-Skaftafellssýslu, en Kaupfélag kennt við sýsluna var stofnað 1926. Fyrir var Halldórsbúð (Jónssonar) frá 1914 þegar Brydebúð frá 1894 hætti rekstri 1913. Þegar Halldórsbúð hætti rekstri 1950 var stofnað í hennar stað Verslunarfélag Vestur-Skaftfellinga.

Guðjón Friðriksson lýsir því á hæverskan hátt hvernig 1400 manna samfélag skiptist í tvær ,,pólitískar" fylkingar um þessi verslunarfyrirtæki. Skiptingin náði til flestra sviða mannlegra samskipta. Hvorki var heilsast á götu né gátu andstæðingar setið saman í rútu til Reykjavíkur. Var þó illt við að eiga af því að sérleyfislög um fólksflutninga gáfu aðeins einum leyfi til að aka fólki á milli Vestur-Skaftafellssýslu og Reykjavíkur. Sérleyfið var til eins árs í senn og fór það eftir pólitískum lit samgönguráðherra hverju sinni hvor verslunin fékk leyfið. Sú verslun sem undir varð útbjó þá lítið farþegarými í vörflutningabíl og sagðist við réttarhöld hafa flutt sína viðskiptavini frítt. Þegar sýslumaðurinn var úr hinni fylkingunni lagði hann ekki trúnað á þann framburð og sektaði.

Stærri fylkingin (B) sagði að til þess að njóta bestu kjara skykdi staðið saman um eina verslun.
Hin fylkingin (D) hélt því fram að andstæðingurinn vildi vera í einokunaraðstöðu.
Hjá Guðjóni kemur fram að andrúmsloft varð annað þegar fyrir kom að flokkar B og D sátu saman í ríkisstjórn. Þessi pattstaða varði til 1990 þegar allir voru að þrotum komnir.

Staðan á milli- og eftirstríðsárunum var önnur í Vestmannaeyjum. Þar gerðu kommar og kratar sig gjaldandi.

Í Vestmannaeyjum hafði fyrrnefndur danski kaupmaður, Johan Peter Thorkelin Bryde, verslað frá 1894 (sjá og 1905) en varð undir í samkeppni við Gísla J. Johnsen (1881-1965), sem byrjaði verslun 17 ára. Verslun Gísla hætti í kreppunni 1930. Sjálfstæðismenn stofnuðu þá verslanir undir kaupfélagsnöfnum, en í Eyjum voru kommar og kratar á millistríðsárunum með tögl og hagldir við verslun í kaupfélögunum Bolsabúð og Kratabúð, en Framsóknar að engu getið uns öll máttu sameinast að kröfu SÍS (Vilhjálms Þór) vegna tapreksturs um 1950.
Um verslunarmál Vestmannaeyja fjallar 14. kafli Samvinnusögu Guðjóns Friðrikssonar á bls. 152 til 290.

HeimildHeimaslóð (opnast í nýjum flipa)

Bolsastaðir, Helgafellsbraut 19:.

HeimildHeimaslóð (opnast í nýjum flipa)

Í Árnessýslu versluðu menn eftir pólitík í KÁ eða Höfn, en um Rangárvallasýslu er lýsing Sigurðar Sigurðssonar dýralæknis í endurminningum: ,,Í störfum mínum á Rauðalæk kynntist ég hverjum einasta manni, sem var af réttri trú ...menn versluðu þarna að mestu eftir pólitík. ...Það voru ekki nema allra víðsýnustu menn sem gátu verslað við Ingólf á Hellu. Þetta var Framsóknarkaupfélag. Eins var það með Sjálfstæðismennina. Þeir gátu ekki hugsað sér að stinga fæti sínum inn í slíkt Framsóknarbæli sem Kaupfélagið á Rauðalæk var".

HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiNáttúruminjasafn (opnast í nýjum flipa)

Um pólitíska verslun á Akureyri á 4. og 5. áratug 20. aldar fjallar Jón Þ. Þór í ,,Höndlað við Pollinn, bls. 153. Fjórflokkurinn hélt þar fjórar verslanir sem áttu trygga viðskiptavini í kjósendum:
Framsókn KEA frá 1902;
Sjálfstæðisflokkur ,,kaupmanninn á horninu", sem aðrir nefndu fasistaverslanir;
Alþýðuflokkur: KVA, Kaupfélag Verkamanna Akureyrar, stofnað 1915;
Kommúnistar (sósíalistar frá 1938), Pöntunarfélag verkalýðsins, sem starfaði 1934 til 1951.

HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1932

  • Deila er upp í Gúttó gaus
  • Feðgar jurtum sá í sverði
  • Þótt hljómi International
  • Þá verkalýðurinn völdum nær
  • Vestrinu hugsaði horn- til grýtis
← 1932Vestrinu hugsaði horn- til grýtis1933 →Um Sprengisand bíll í Bárðardal