Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1932
1932
1932

Þótt hljómi International

Hljóðbrot0:00

Lag Vater unser im Himmelreich

ÞÞótt hljómi Internationalnú um Bolungarvík og dalheims- nær kreppan harðna- heitt í kolum þarna -höndum taka HannibalHögnamenn og Bjarna.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Glúmur Gylfason · 1932

Heimildir og samhengi

BOLUNGARVÍKURDEILAN:
Salka Valka eftir Halldór Laxness kom út í tveimur hlutum árin 1931 og 1932. Þar, í þorpinu Óseyri við Axlarfjörð, hét athafnamaðurinn Bogesen.
Í Heimsljósi, sama höfundar eru svipuð átök. Sannir Íslendingar Péturs Þríhross gegn ættjarðarleysingjum Arnar Úlfars. Halldór skrifaði gjarnan samtímaatburði inn í skáldverk sín.

Pétur Oddsson (1862-1931) kaup- og útgerðarmaður í Bolungarvík hafði látið svo um mælt, að ,,meðan hann lifði skyldi bolsévisminn ekki ná út fyrir Hólana" (Óshóla, sbr. Óshlíð), þ.e., ekki til Bolungarvíkur frá rauða bænum Ísafirði. Það gekk eftir. En jafnskjótt og hann lést er stofnað verkalýðsfélag þar fyrir forgöngu Hannibals Valdimarssonar, formanns verkalýðsfélagsins á Ísafirði. Nýir athafnamenn komu þá til sögu í Bolungarvík: Einar Guðfinnsson, sem gekk til samninga við verkalýðsfélagið, og Högni Gunnarsson og Bjarni Fannberg, sem það gerðu ekki. Verkfall var þá boðað hjá fyrirtæki þeirra, og hafði sd. 6. maí staðið í 6 daga (urðu 9 vikur) þegar Hannibal slóst með í söngför Karlakórs Ísafjarðar til Bolungarvíkur og ætlaði að heimsækja formann verkalýðsfélagsins í Bolungarvík. Undir forystu Högna Gunnarssonar knúðu um 20 menn þar dyra, umkringdu Hannibal og höfðu á brott með sér í vélbát til Ísafjarðar þrátt fyrir öfluga mótspyrnu Hannibals í orði og verki.

Aldarfjórðungi síðar kemur ráðherrann Hannibal Valdimarsson í opinberum erindagjörðum til Bolungarvíkur. Þá hefur hreppurinn nýlega keypt hús í bænum fyrir skrifstofur sínar og er ráðherranum boðið þangað, sem heiðursgesti, í sama horn þess húss sem hann var fluttur með valdi frá 25 árum áður.
Heimild: Elías Snæland Jónsson, Aldarspegill, endursögn af bls. 176.
Vefurbolungarvik.is (opnast í nýjum flipa)

Á bls. 174 vekur Elías Snæland Jónsson athygli á að ,,árið 1932 gekk í garð með alvarlegri deilu í Keflavík, þar sem atvinnurekendur og stuðningsmenn þeirra taka formann verkalýðsfélagsins höndum að næturlagi og flytja með valdi til Reykjavíkur".

Einnig um þetta sama ár á bls 174: ,,..seinni hluta sumars kemur til hamrammra átaka milli stjórnar Síldarverksmiðja ríkisins á Siglufirði og verkalýðsfélagsins þar, en í miðri þeirri deilu ..hverfur formaður verkalýðsfélagsins ...og finnst látinn í sjónum".

Í Vestmannaeyjum kom til ryskinga í Saltslagnum 1930, Gullfossdeilunni 1931 og og sjómannaverkfallinu 1932.
Þór Whitehead, Sovét Ísland, bls. 68: ,,ágreiningur um verkfallsrétt og starfsemi verkalýðsfélaga hafði áður komið upp víða um lönd ...og átti enn eftir að kosta hörð átök og mannslíf, þar á meðal í Svíþjóð 1931".

Þess verður að geta, að útflutningsafurðir hríðféllu í verði á þessum árum, en mörg verkalýðsfélög kröfðust óbreyttra launa og hlutu einatt stuðning þeirra flokka sem skipuðu minnihluta viðkomandi bæjarstjórna þegar þær efndu til atvinnubótavinnu.

Kreppan er í algleymingi með Gúttóslag, fátækt, atvinnuleysi og skorti. Mæður vaka um nætur við að stoppa í og bæta föt barna á olnbogum og hnjám (sbr. Sigurð Helgason hér í aths. við Gúttóslaginn).

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1932

  • Deila er upp í Gúttó gaus
  • Feðgar jurtum sá í sverði
  • Þá verkalýðurinn völdum nær
  • Vestrinu hugsaði horn- til grýtis
  • Við erlent kaupslag orðin frí
← 1932Feðgar jurtum sá í sverði1932 →Þá verkalýðurinn völdum nær