Deila er upp í Gúttó gaus
Lag Þótt ég sökkvi í saltan mar - Bj.Þ. 881
Deila er upp í Gúttó gausgat eigi nýtt sér símaen Héðinn ei stóð aðgerðalaus- Álfheiður þeirra tíma.
Hungurs- ríkir neyð í Úkraínuþví oftast hyggur Stalín æ að sínuer Kremlverjinn fær kommúnistum línumeð krötum slær þá enn í harða brýnu.
Heimildir og samhengi
GÚTTÓSLAGURINN síðari.
Í Sovét Íslandi, bls. 157 telur Þór Whitehed Gúttóslagina a.m.k. þrjá, en ,,Félag ungra kommúnista hélt útbreiðslufund í janúar 1932 og gengu þaðan kröfugöngu til bæjarstjórnarfundar sem fékkst við fjárhagsáætlun. Króuðu tvo lögreglumenn af í anddyrinu og hugðust dreita bæjarfulltrúa inni nema segðu af sér og fór ekki hljóðlega fram en boðum um liðsauka varð komið til lögreglustjóra. Tók hálfa klukkustund að ryðja Gúttó og þurfti gúmmíkylfur til og urðu sumir sárir.
Oftar slógust verkamenn, og kommúnistar sem kölluðu sig verkamenn, við lögregluna í Reykjavík vegna atvinnu- og kaupgjaldsmála: 7. júlí m.a. utan við Góðtemplarahúsið, en 9. nóvember var og slegist inni í húsinu, nefnt ..Gúttóslagurinn”.
Mótmælt var fyrirhugaðri kauplækkun við atvinnubótavinnu á vegum Reykjavíkurbæjar.
Héðinn Valdimarsson 1892-1948var ennþá forystumaður í Alþýðuflokknum á þessum tíma og sagði síðar í Alþýðublaðinu, að aðkoma hans að bardaganum - rétti mönnum stólfætur út um glugga Gúttós - hafi verið til þess gerð að kommúnistum, sem hvött höfðu til óeirðanna, tækist ekki að reka fleyg á milli verkamanna og forystu Alþýðuflokksins. (1938).
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þetta sumar voru og kaupdeilur í Bolungarvík þar sem hendur voru látnar skipta og Hannibal Valdimarsson þaðan fluttur nauðugur sjóveg til Ísafjarðar. (Tilvísun: Einar Laxness, Íslands saga I, 75, 170).
Tilvísun: Dr. Stefán Einarsson; Skáldaþing, útg. 1948, fjallar um Sölku-Völku Halldórs Laxness, sem kom út þetta ár: ,,Pólitískir forkólfar spretta (þar, t.d. í Sviðinsvík) eins og gorkúlur á haugi ...íhaldsmenn halda fast í sjálfstæðisbaráttuna enda þótt sjálfstæðið sé þegar unnið, en hinir róttæku prédika þá jarðnesku paradís kommúnismans og æsa fátækan almúgann upp til verkfalla og uppreisnar gegn helvítis kaupmanninum".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Steinar J. Lúðvíksson: Í sviptivindum, Æviminningar Sigurðar Helgasonar, bls. 23:
,,Kreppuárin voru eymd og vonleysi hvert sem litið var og fólk sem upplifði slíkan tíma hlýtur að hafa mótast af honum og ekki síst þeir sem voru á viðkvæmum unglingsaldri. ..Menn máttu þakka fyrir að hafa í sig og á. Allt var nýtt sem mögulegt var ... saumað upp úr fötum eða þau bætt aftur og aftur...en kannski var vonleysið verst af öllu. ...Þjóðfélagsólgan sem fylgdi kreppunni fór heldur ekki fram hjá neinum. Heift fólksins beindist að bæjaryfirvöldum og stjórnvöldum sem gátu í raun lítið að gert til að bæta ástandið.
Nú sjá tískufrömuðir þessi ár rifinna og bættra fuglahræðufata í hyllingum drauma sinna".
Í svarbréfi 1831 hneykslast Hafnarstúdentinn Torfi á bróður sínum, Friðrik Eggerz, að beri sig saman við þá íslensku stúdenta sem svelti þar ytra eins og hrafnar á vetri og gangi ,,eins og ræflar úr svelli rifnir ...með föt bætt á olnbogum". Torfi var ,,týndi sonur" ríka bóndans, séra Eggerts á Ballará og skrifaði heim eftir meiri peningum.
Heimild: Sverrir Kristjánsson, Horfin tíð, bls. 22.
Kreppan reyndist íslenskum kommúnistum drjúg til fylgisaukningar sem skilaði þeim von bráðar inn á þing. Þeir sem hér stóðu í stórræðum sóttu styrk til síns andlega föður, Jósefs Stalín, sem var þeirra óskeikuli páfi.
Á sama tima og kommúnistar slást í Gúttó gerir leiðtogi þeirra, Stalín, af ásetningi, tugi milljóna hungurmorða í Úkraínu..
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Dæmi um væringar kommúnista og Alþýðuflokksmanna og tilefni þeirra eru tilfærð hér víðar við þetta ár, svo og 1935 og 1938.