Um Sprengisand bíll í Bárðardal
Lag Fylgi þér, mágur, farsæld nú. (séra Sigvaldi Árnason á Stað)
Um Sprengisand bíll í Bárðardalog brú á Markarfljótistórbóndinn Jón í Stóradalstríðir nú Framsókn mótiÁsgeir sitja í öndvegi skaleigi þótt lengi njótiog þakkir þrjótihakakrossfána Steinarr stalSteins bíður vist í Grjóti.
Heimildir og samhengi
Jónas Ragnarsson, Dagar Íslands, 20. ág.: ,,Sprengisandsfarar komu að Mýri í Bárðardal eftir fimm daga ferð úr Landsveit. Þetta var fyrsta ferð á bíl yfir Sprengisand”.
3 hjól undir bílnum: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Kreppunni fylgir ólga milli flokka og innan þeirra og ekki reyna kommúnistar að draga úr henni þótt ekki eigi mann á þingi.
Eftir kosningar 1932 var pattstaða í efri deild alþingis, jöfn tala stjórnarliða, B, og andstöðuflokka, A og D. Þá var mynduð stjórn Sjálfstæðisflokks og (óánægðra) Framsóknarmanna með Ásgeir Ásgeirsson (1894-1972) í forsæti. Hann kjörinn forseti Íslands 1952, en hafði þá starfað utan flokka og innan tveggja áður en það varð. Tengdasonur hans, Gunnar Thoroddsen, var þá borgarstjóri Reykjavíkur fyrir þann eina (þing)flokk sem Ásgeir hafði ekki verið í árið 1933.
Forsetakosningarnar 1952 höfðu áhrif á framvindu stjórnmála fram til níunda áratugar 20. aldar.
Vefurfilmcentralen.dk (opnast í nýjum flipa)
Viðræður Framsóknar- og Alþýðuflokks um stjórnarsamstarf urðu til þess að Framsóknarflokkur klofnaði.
Húnvetnsku þingmennirnir, Jón Jónsson í Stóradal (1886-1939) og Hannes Jónsson, Hvammstanga (1893-1977), reknir, -,,létu reka sig" - úr Framsóknarflokknum og stofnuðu Bændaflokkinn
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
með Tryggva Þórhallssyni og séra Þorsteini Briem (1885-1949) ráðherra. Þeir ásamt alþm. Halldóri Stefánssyni (1877-1971) andvígir stjórn með Alþýðuflokki og lyntu ekki við Jónas Jónsson en hófu formlegt samstarf við Sjálfstæðisflokk með kosningabandalaginu: ,,Breiðfylking Íslendinga gegn sósíalismanum”, en frá 1927hafði slagorðið verið: ,,Allt er betra en Íhaldið", höfundur Tryggvi.
Ágúst á Hofi (Vatnsdal), bls. 77: ,,Eftir kosningarnar 1933 tók að gerast róstusamt í Framsóknarflokknum. ...Samlyndi þeirra Tryggva og Jónasar fór út um þúfur. Ásgeir var að verða viðskila við flokkinn. ...þar (í Húnaþingi) varð á næstu árum vettvangur meginátaka um tilveru nýs stjórnmálaflokks (Bændaflokksins).
Skáldið, Steinn Steinarr (Aðalsteinn Kristmundsson 1908-1948), skar við fimmta mann niður hakakrossfána við bústað þýska ræðismannsins á Siglufirði 6. ágúst og hlutu fangelsisdóm.
Mynd Hallgríms Helgasonar af Steini:
Vefurhallgrimurhelgason.com (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Fangelsið við Skólavörðustíg í Rvk. steinhlaðið 1872 og fékk heitið Steinninn og/eða Grjótið en sú eldri við Arnarhól hét Múrinn eftir byggingarefninu.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
Vefurdailymotion.com (opnast í nýjum flipa)
Markarfljótsbrú lokið og ekin frá 1933, vígsluathöfn 1934.
Að brúnni var ekið um niðurgrafna braut á Markarfljótsaurum a.m.k. til 1950, skv. Ysjum II, 333.
Heimildir: Hannes Pálsson: Vopnaskipti og vinakynni, bls. 118-124;
Ævisaga Ásgeirs Ásgeirssonar; Einar Laxness, Íslands saga, bls. 79;
Halldór Stefánsson: Refskák stjórnmálanna, bls. 47;
Héðinn Valdimarsson: Skuldaskil Jónasar Jónssonar við sósialismann. (1927, 1934, 1948).