Þá verkalýðurinn völdum nær

Þá verkalýðurinn völdum nærvægir hann ekki ríkumþeim treður um tærklippir á klærog klæðir sig þeirra flíkum.

Glúmur Gylfason · 1932

Heimildir og samhengi

Í málgagni Kommúnistaflokksins, Verkalýðsblaðinu 2. júní 1932, ritstjóri og ábyrgðarmaður Brynjólfur Bjarnason, er lýst væntanlegri valdatöku kommúnista í grein sem nefndist ,,Hvað er kommúnisminn?". Úrdráttur:
Ríkisvald verkalýðsins skyldi vægðarlaust berja niður allar tilraunir auðvaldsins til að hrifsa völdin að nýju. Það skyldi reka og sameina alla banka í einn og þjóðnýta allan innflutning, verslun og skipastól, taka lóðir og lendur auðmanna eignarnámi, útbýta ókeypis til verkalýðsins matvælum úr eigu auðvaldsins svo sem saltkjöti, saltfiski, síld og öðru. Húsnæði burgeisa yrði skipt upp, fötum og fataefni úthlutað úr verksmiðjum til alþýðu. Úr Ráðstjórnarríkjunum gætu Íslendingar fengið allt sem þá vanhagðaði um og selt þangað alla framleiðslu sína.

Verkalýðsblaðið var málgagn kommúnista til 1936, en það ár var nafni blaðsins breytt í Þjóðviljinn, og að tilhlutan Jósefs Stalín horfið frá alþjóðlegri stefnu Flokksins: ,,öreigar allra landa sameinist", og tekin upp þjóðernislega sambandsslitastefna enda ,,gæti Sovét-Ísland aldrei orðið að veruleika með kóng sem þjóðhöfðingja" - orð Stalíns.

Atvinnurekendur syngja ,,NALLANN":
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Myndir