Vestrinu hugsaði horn- til grýtis

Vestrinu hugsaði horn- til grýtisHalldór og mælti ei ofen sjöunda kjallara Sovétvítissöng lengi prís og lof.

(horngrýti: (hel)víti).

Glúmur Gylfason · 1932

Heimildir og samhengi

Sigurður Hróarsson, ,,Eina jörð veit ég eystra", bls. 71: ,,Eftir að hafa lesið alla lýsingu Halldórs í Skáldatíma á viðbrögðum hans við allsleysi, fátækt og öðrum hörmungum Sovétríkjanna þetta haust (1932) virðist manni helst sem á þeirri stundu sem hann yfirgaf Sovétríkin hafi hann verið svo gersamlega agndofa ...að helst hefði hann viljað þakka almættinu þá óvæntu gæfu að sleppa lifandi úr landi svo hann gæti bjargað mannkyninu vestan múra ...frá því að ánetjast þeirri tröllheimsku sem ... brennt hafði til ösku hið merka heimsveldi Nikulásar annars og kortlagt það sjö hæðum fyrir neðan helvíti.
Sjálfur segir Halldór (1963) í Skáldatíma: ,,Það minnti mig á eilífa sælu að koma aftur á áreynslulausan stað þar sem lífið gekk sinn vanagáng eins og á Hótel Exelsior í Berlín".

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Viðbrögð Halldórs eftir heimkomuna voru hvorki viðvörunaróp né fordæming ...við tók það tímabil sem Halldór hefur af mestum krafti lofsungið Sovétskipulagið".

Bls. 69: ,,Halldór gengst við því í Skáldatíma 1963, að samyrkjan í framkvæmd haustið 1932 hafi verið bæði botn- og glórulaust helvíti".

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Myndir