Af mörgum var Björgvinjarsýningin sótt
Lag Dvel ég í draumahöll
Af mörgum var Björgvinjarsýningin sóttauk Zoega, Kristins og Jónsog þar af reyndist sköpum skjóttskipt í útvegi Fróns.Sigríðar orð þóttu sönn og gildvið Sigurðar jarðarför:,,Vandalaus hvorki var né skyld"vel kunni orða svör.
Heimildir og samhengi
Sóttu sjávarútvegssýningu í Björgvin, m.a: Hafliði Eyjólfsson (1822-1894), Svefneyjum, Sumarliði Sumarliðason (1833-1926), oft kenndur við Æðey, Geir Zoega (1836-1917), Jón (1818-1885) Þórðarson í Hlíðarhúsum, Rvk., skipstjóri og skipasmiður, Jónssonar í Gróttu og Engey, Péturssonar í Engey, og Kristinn Magnússon í Engey (1827-1893), skipasmiður, faðir Péturs í Engey (1859-1887), föður Guðrúnar (1878-1963) konu Benedikts alþm. Sveinssonar (1877-1954) og Ragnhildar (1880 -1961) konu Halldórs skipstjóra Þorsteinssonar í Háteigi og urðu síðan mörgum fyrirmynd við útgerð, ekki síst Engeyingarnir.
Bjarni Benediktsson eldri, forsætisráðherra, var sonur Guðrúnar Pétursdóttur og Benedikts alþm. Sveinssonar.
Eftir Noregsferðina hannaði Kristinn seglabúnað sem þótti taka öðrum fram. Þegar útgerð þeirra gat af sér og bættust afburðamenn svo sem Markús Bjarnason (1849-1900) og fyrrnefndur Halldór (1877-1966), byrjar skútuöldin síðari á SV-verðu landinu 1880-1910 og flýtti fyrir afnámi vistarbandsins 1894.
Saga Íslendinga IX, I, 335, úrdr: Upphaf skútualdar við Faxaflóa má rekja til fiskisýningar sem haldin var í Björgvin 1865. Geir Zoega og Kristinn Magnússon úr Engey gerðu félag með sér og Jóni Þórðarsyni í Hlíðarhúsum og keyptu þilskip frá Danmörku. Varð það stofninn að einu farsælasta útgerðarfélagi landsins.
Árni Óla, Strönd og Vogar, 58, segir frá hrstj. Guðmundi Guðmundssyni (1841-1920), Landakoti, Vatnsleysuströnd, Brandssonar alþm., sem ,,var mjög umfram aðra menn” og sendur á sýninguna og lærði og kenndi að blásteinslita þorskanet og alla meðferð þeirra.
Bókin Gullsmiðurinn í Æðey segir frá Sumarliða Sumarliðasyni, sem með styrk Vestfirðinga sótti sýninguna í Björgvin, en áttu síðan ekki skap saman, hvorki til að kenna né að læra. Sat svo við það sama í útgerð þar til 1902.
Sjá og Jón Þ. Þór, Sjósókn og sjávarfang, bls. 197.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Sr. Sigurður Gíslason Thorarenen, prestur í Hraungerði, hafði flutt inn kláðahrútana frá Englandi 1855. Hafði kláða áður verið útrýmt með niðurskurði á 18. öld og vildu flestir grípa aftur til þeirra ráða fremur en lækningar.
Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar II, 86: ,,Leiddi þessi skoðanamunur af sér svæsnar deilur ...mest varð ofstækið til séra Sigurðar".
Síðari kona hans, mdm. Sigríður Pálsdóttir (1809-1871), þá stödd hjá dóttur sinni, prestsfrúnni á Breiðabólsstað í Fljótshlíð, gat ekki fylgt síðari manni sínum, fyrrnefndum sr. Sigurði, til grafar, en frægt svarið við sneið tengdasonarins, séra Skúla Gíslasonar, er sagðist hafa sagt í útfararræðunni, að allir hefðu verið honum vondir bæði skyldir og vandalausir. Sigríður: ,,Ekki tek ég það til mín, því að hvorki var ég honum skyld né vandalaus”.
Íslenskar ævisrár, IV, 271: ,,...lenti (sr. Sigurður) þar (á Álftanesi) í leiðu máli út af skipsstrandi ...og við önnur leið málaferli var hann bendlaður. ...Hann þótti ágengur enda vel efnum búinn, en lítill kennimaður". Sonur hans með fyrri konu, bróðurdóttur sinni, Guðrúnu Vigfúsdóttur sm. Þórarinssonar á Hlíðarenda, var sr. Sigurður Thorarensen, skáld og tónlistarmaður á Kálfaströnd.
Mynd er til af séra Sigurði Thorarensen og finnst á bls. 107 í Sögu Selfoss 1 eftir Guðmund Kristinsson.
Vigfús Guðmundsson frá Keldum, Oddi, bls. 96: ,,Séra Sig. Thór. þókti líkjast foreldrum sínum (Sr. Gísla í Odda og Jórunni Sigurðardóttur alþingisskrifara Sigurðssonar) um fégirnd og harðdrægni við hjáleigubúa. Eru enn uppi sagnir um þetta og lausavísur".
Fyrri maður Sigríðar var séra Þorsteinn Helgason í Reykholti, sá sem Jónas Hallgrímsson orti um: Hvarmaskúrir, harmurinn sári. // Veit þá enginn að eyjan hvíta.
Ragnheiður, dóttir þeirra sr. Þorsteins var móðir Gríms b. Kirkjubæ, Rang., föður Egils Thorarensen, fyrsta frkvstj. Kaupfélags Árnesinga (sjá 1907, 1930).
Séra Sigurður í Hraungerði var m.a. faðir sr. Stefáns skáldprests Thorarensen á Kálfatjörn, sem þýddi marga sálma höfuðskálda beggja siða fyrir Sálmabókina 1876og enn eru 32 þeirra í Sálmabók Kirkjunnar 1997.
Aðrar heimildir og tilvísanir:
Jón Helgason, Íslenskt mannlíf I, 185: Sigríðarskiptin.
Saga Stykkishólms II, bls. 59; Engeyjarættin, Rvk. 2011.
Guðmundur Magnússon: Íslensku ættarveldin, 238, Veröld 2012.
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
SkjalSkemman (opnast í nýjum flipa)
HeimildFerlir (opnast í nýjum flipa)