Árið 1865

t.d.

4 vísur frá árinu 1865
  1. 1865Lag: Dvel ég í draumahöll

    Af mörgum var Björgvinjarsýningin sótt

    auk Zoega, Kristins og Jóns
    og þar af reyndist sköpum skjótt
    skipt í útvegi Fróns.
    Sigríðar orð þóttu sönn og gild
    við Sigurðar jarðarför:
    ,,Vandalaus hvorki var né skyld"
    vel kunni orða svör.

    Sóttu sjávarútvegssýningu í Björgvin, m.a: Hafliði Eyjólfsson (1822-1894), Svefneyjum, Sumarliði Sumarliðason (1833-1926), oft kenndur við Æðey, Geir Zoega (1836-1917), Jón (1818-1885) Þórðarson í Hlíðarhúsum, Rvk.,…

    Hlusta
    Breiðabólsstaður, FljótshlíðBjörgvinHraungerði í Flóa+6
  2. 1865

    Fárra' er á valdi um framtíð að spá

    en feigðin um síðir oss öllum skal ná
    útgerðarflokkur þá ægi gekk frá
    til Auðna á Vatnsleysu-
    ströndinni - sjá!
    elding til jarðar sló alla, en þrjá
    eilífðarfaðir kaus geyma sér hjá.

    Árni Óla, Strönd og Vogar, 137, segir frá því þegar níu menn lögðu af stað frá Reykjavík til Voga 16. mars á fullhlöðnum 8æringi af mó og farangri handa útvegsmönnum. Hvassviðri var á austan og veðurútlit ískyggilegt.…

    Hlusta
    EldingaveðurKálatjarnarkirkjaMerki sveitarfélagsins Vogar
  3. 1865

    Olufa setti ei sitt ljós

    undir mælikerið
    í hnappagati Hilmars rós
    hefur dýrmætt verið.

    Olufa Finsen, dönsk, fædd Bojesen (1835-1908), fluttist þetta ár til Íslands með manni sínum, Hilmari Finsen (1824 - 1886) sem þá tók við stiftamtmannsstarfi, sem varð landshöfðingjaembætti 1873 og bjuggu þau á Íslandi…

  4. 1865

    Eftir mikla orrahríð

    amerískra granna
    bundinn er endir á borgarastríð
    Bandaríkjamanna.

    Wikipedia: ,,Meginorsök stríðsins var langvarandi ágreiningur um framtíð þrælahalds í Bandaríkjunum, einkum deilur á milli norðurríkjanna og suðurríkjanna um það hvort þrælahald skyldi heimilað í nýjum fylkjum og…