Árið 1876

t.d.

3 vísur frá árinu 1876
  1. 1876Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Götuljós við Bakarabrú.

    Baðar ekki Dóri.
    Í Vík til læknis læra nú
    að lengur þjóðin tóri.
    1 erindi til viðbótar

    Mbl. 5. apr. 2005: ,,Fyrstu götuljósin í Reykjavík, sjö olíuluktarker, voru sett upp 1876. Fyrsta útiljósker og brenndi steinolíu, var sett upp við brú yfir Lækinn hjá Bakarabrekku, núverandi Bankastræti - ávallt var…

    Hlusta
    Halldór Kr. FriðrikssonNýtt ljósker við Bakarabrú+5
  2. 1876Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Austfirðir í afneitun

    allt er þar í sóma
    hafa ekki grænan grun
    um greddu og kynsjúkdóma.

    Ingunn Jónsdóttir (1855-1947) segist í Minningum, útg. 1937, hafa farið 1876 sem ráðskona að heiman frá Melum í Hrútafirði til bróður síns, séra Jóns að Bjarnarnesi. Hún var tvo mánuði á leiðinni. Fyrst í söðli til…

    Hlusta
    Ingunn JónsdóttirPhönix (Íslandsfar, fórst 1881)
  3. 1876Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Öskjugosið guma þvingar

    og gamla vistarbandið
    á annað þúsund Íslendingar
    yfirgefa landið.

    Öskugos hófst í Öskju 28. mars. 1875. Mökkurinn barst næsta dag yfir Austfirði og allt til Svíþjóðar á 38 klukkustundum. Á næstu misserum fluttust Austfirðingar í hrönnum til Ameríku enda var þykkt öskulag á túnum og…

    Hlusta
    VesturfararAskjaSigfús Eymundsson, agent, kaupmaður, ljósmyndari