Fárra' er á valdi um framtíð að spá
Fárra' er á valdi um framtíð að spáen feigðin um síðir oss öllum skal náútgerðarflokkur þá ægi gekk frátil Auðna á Vatnsleysu-ströndinni - sjá!elding til jarðar sló alla, en þrjáeilífðarfaðir kaus geyma sér hjá.
Heimildir og samhengi
Árni Óla, Strönd og Vogar, 137, segir frá því þegar níu menn lögðu af stað frá Reykjavík til Voga 16. mars á fullhlöðnum 8æringi af mó og farangri handa útvegsmönnum. Hvassviðri var á austan og veðurútlit ískyggilegt. Náðu Vogum að kvöldi og gistu þar. Næsta morgun, þegar heim skyldi haldið, var komin hríð með snörpum éljum. Fóru því grunnleið svo ná mætti landi ef veðrið versnaði – sem það gerði.
,,Reru þeir svo upp í Auðnavarir. ...gekk skipshöfnin heim að Auðnum og voru allir í skinnklæðum sínum. ...Skipverjar röðuðu sér nú undir norðurgafl timburhússins og hugðust standa þar af sér élið. Í sama bili sló eldingu niður í húsið og féllu þá allir mennirnir 9 til jarðar ...og vissu ekki af sér um hríð. Skjótt var brugðið við að koma mönnunum til hjálpar. Þá var líkt og reykjarsvæla kringum húsið”.
Þegar að var komið voru tveir örendir, en sá þriðji lést af brunasárum 30. mars. Tveir lifðu bæklaðir af.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)