Veðjuðu á vitlausan hest
Lag Syngur lóa - Bj.Þ. 869
Veðjuðu á vitlausan hestsem vildu fara stríð íhertogadæmin duttu' úr lestDanir lágu í því [íðí].
Heimildir og samhengi
Þar til 1871 höfðu Þjóðverjar búið að nafninu til undir keisara en í allt að 300 sjálfstjórnarhéruðum, sem eftir fall Napoleons, 1815, voru fyrir tilverknað hans orðin 38 þegar myndað var Þýska sambandið og lutu hvert sínum hertoga. Þeirra á meðal voru dönsku kóngarnir, en þeir höfðu síðan 1460 jafnframt verið arfahertogar í nyrstu héruðunum: Lauenburg, Holstein, - sem gengið hafði í Þýska ríkjasambandið 1850 - og Slésvík.
Frá 1851 og fyrr hafði verið pólitísk ókyrrð í Holstein gegn danskri stjórn og sundrung mikil í Schlesvik þar sem íbúar töluðu bókstaflega tungum tveim. Sameiningaráform voru á döfinni með þýsku ríkjunum 38 og sem tóku til allra dönsku furstadæmanna.
Kanslari og hershöfðingi Vilhjálms I. Prússakonungs frá 1862 til 1890 var Otto von Bismark, og fulltrúi Prússa á Sambandsþinginu í Frankfurt og ,,gert þar Austurríki allt til bölvunar sem hann gat". (Sv.Kr. III, 187). Markmið hans með sameiningu var að Prússland næði forystu í þýsku veldi af Austurríki, sem einrátt hafði verið í málum ríkjanna þýsku. Því markmiði náði hann með þremur styröldum: Í þeirri fyrstu, 1864, rak hann Dani norður fyrir Slésvík, þá sigraði hann Austurríkisherinn sem hersat Holstein og að síðustu espaði hann Frakka til stríðs 1871 og sigraði þá.
Þetta er stríðið sem tafði/hindraði för norðlensku drengjanna: Nonna frá Kaupmannahöfn til Parísar um ár og sneri Gunnari Einarssyni - Ásmundssonar í Nesi - til Íslands.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Sverrir Kristjánsson segir á bls. 92 í Ritsafni III, að þegar þýska þjóðin var kvödd til vopna gegn Napoleon hafi hún gert það til þess að ná sameiningu og póitísu frelsi - sem þó ekki varð þá. Hér mætti standa að furstar og borgarstétt hafi kallað almúgann til vopna. Þar eins og í Danmörk var langt í almennan kosningarétt og þingbundið lýðræði (1901) og enn lengra í að hálf þjóðin, konur, hefðu þar vægi.
Vefurhanisauland.de (opnast í nýjum flipa)
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
Sverrir Kristjánsson fjallar um málið í Ritsafni III frá bls. 104 og Ritsafni I, frá bls. 234, og hvernig það kom við stjórnarskrármálefn Íslands þá. Niðurstaða Sverris er að málin hafi verið komin í hnút sem ekki varð leystur nema með sverðinu - I, bls. 272. Og Danir voru til í tuskið - enn í vímu eftir ,,sigurinn" í Slésvíkurstríðinu 1848 -1850. En þeir guldu afhroð við Djúpapyttsmyllu, (Dybbølmølle) á Suður-Jótlandi 18. apríl 1864 og misstu í framhaldinu héruðin Lauenburg, Slésvík og Holstein. Flestir íbúar þar voru þýskumælandi, en 200 þúsund í Norður-Slésvík áttu þó dönsku að móðurmáli. Þeir fengu brátt ekki að kenna börnum sínum dönsku og þau jafnvel tekin af foreldrum ef ei var hlýtt eða danska töluð heima. Mörgum öðrum þvingunum var beitt til þess að gera Dani að Þjóðverjum eftir 1871. Tóku þá margir þeirra að flytjast norður fyrir landamærin og sumir til Íslands og fluttu með sér margs konar verkkunnáttu, en hún, segir Sverrir, var á þessum framfaratímum lengra komin þar en annars staðar í Danmörk.
Þeim æskumönnum sem eftir urðu var gert að ganga í þýska herinn í Fyrri heimstyrjöldinni þar sem þeir stráféllu - um 6.600 af 20.000 - fyrir málstað sem ekki var þeirra.
Árni Heimir Ingólfsson, Saga tónlistarinnar, bls. 350: ,,Meðal þess sem auðveldaði sameiningu Þýskalands (1871) úr ótal smáríkjum var sameiginleg söguvitund og hún fólst meðal annars í aðdáun á tónsnillingum fyrri alda".
Heimild: Kvikmyndin Grænselandet, sýnd á DR 31. maí 2020. Í henni tala leikararnir dönsku eins og hún var áður en ensk áhrif gerðu vart við sig. Sbr. t.d. nafn landsins, sem nú er borið fram á ensku [denmark]. Sjá einnig fyrsta orðið á eftirfarandi slóð:
Vefurgraenseforeningen.dk (opnast í nýjum flipa)
(Sjá 1834, 1866, 1868, 20. öld).
Vegna gífurlegs mannfalls, - um 5.500 Danir féllu á fáum klukkustundum - þá hefur Dybpølsmylla orðið táknmynd þessara atburða 1864.
Sigurvegarar í fyrri heimsstyrjöld töldu Þjóverja eiga sök á því stríði og varð til þess að efnt var til þjóðaratkvæðagreiðslu á Suður-Jótlandi um landamæri Þýskalands og Danmerkur, sem leiddi til núverandi stöðu, árið 1920. Nefnt ,,genforeningen."
Hundrað árum síðar, 2020, búa 50 þúsund Danir Þýskalandsmegin en 15 þúsund Þjóðverjar norðan landamæranna.
Tap Dana 1864 hafði sín áhrif á Íslandi. Borgarstjóri í Sönderborg fyrir stríðið var Hilmar Finsen, sonur Jóns Hannessonar biskups Finnssonar. Hilmar varð því atvinnulaus og sendur til Íslands sem stiptamtmaður og síðar landshöfðingi, sjá 1856, 1873.
Kona hans var tónlistarmaðurinn Olufa fædd Bojesen (1835-1908), sem átti með föður sínum stóran þátt í að Kvennaskóli Þóru Melsteð komst á legg og stofnaði hér fyrst blandaðan kór sem frumflutti íslenska þjóðsönginn. Sjá 1824, 1865, 1873, 1874, 1879.
Í Fjallkirkjunni I, 28, lætur Gunnar Gunnarsson Greip Uggason skjóta Skjóna með danskri hermannabyssu, framhlaðningi frá 1864.
Heimild m.a. DR, rás 1, þáttur um stríðið 1864, sýndur 24. maí 2020.
Vefurdr.dk (opnast í nýjum flipa)
Sjá og heyrið að þarna, 1971 er nafn Danmerkur enn borið fram með [a]:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
[Viðlag]
Der er jo noget galt i Danmark
Dybbøl Mølle maler helt ad helvede til
Bare tegnedrengen er i orden
Ka' man få det, som man vil
Blæse vær' med andres mening
Selvom det er dem, der står for skud
Der er noget skævt i toppen
Noget der trænger til at skiftes ud
EÐA Rasmus Bjerg: MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þáttur Íslands í sameiningu þýsku ríkjanna 1871:
Prússar sigruðu Dani 1864, Austurríki í júlí 1866 og börðust til sigurs við Frakka 1870-71. Frakkar sendu skilaboð með bréfdúfum frá París til vígstöðva, en Bismark aflaði þá fálka frá Íslandi, sem réðust gegn dúfunum - heimild: Einar Laxness Íslands saga, 123, fálkaveiðar, einnig Sverrir Kristjánsson, Ritsafn I.