Eftir mikla orrahríð
Eftir mikla orrahríðamerískra grannabundinn er endir á borgarastríðBandaríkjamanna.
Heimildir og samhengi
Wikipedia:
,,Meginorsök stríðsins var langvarandi ágreiningur um framtíð þrælahalds í Bandaríkjunum, einkum deilur á milli norðurríkjanna og suðurríkjanna um það hvort þrælahald skyldi heimilað í nýjum fylkjum og landsvæðum sem bættust við yfirráðasvæði landsins. Suðurríkin, þar sem vinnuafl svartra þræla var rótgróinn hluti af efnahags- og landbúnaðarkerfinu, lýstu yfir sjálfstæði frá Bandaríkjunum eftir að Abraham Lincoln, sem var fylgjandi afnámi þrælahalds, var kjörinn forseti árið 1860.
Átökin hófust 12. apríl 1861 þegar her Suðurríkjanna réðist á Sumter-virki í Suður-Karólínu.
Geisaði síðan borgarastyrjöld í Bandaríkjunum til 1865 á milli sambandsstjórnarinnar eða „Sambandsins“ og ellefu suðurríkja sem lýstu yfir sjálfstæði frá Bandaríkjunum.
Þann 3. apríl 1865 gafst R. E. Lee, hershöfðingi Suðurríkjanna upp fyrir Norðurríkjaforingjanum Grant, sem síðar varð forseti eftir að höfuðborg Suðurríkjasambandsins hafði fallið í hendur Norðurríkjamanna og lauk þar stríðinu með sigri Norðurríkjanna".
Grant forseti kom við sögu 1867 þegar hann setti skip undir Jón Ólafsson ritstjóra og sigldi til Alaska sem USA var í þann veginn að kaupa af Rússum og miklar deilur stóðu um í bandaríska þinginu. Jón vissi að það myndi styrkja söðu Grants ef fólk flytti til Alaska og kynnt Grant hugmyndir sínar um að flytja alla Íslendinga þangað og vildi fá þá ókeypis flutta vestur. Það fékkst ekki og rættist því ekki sú áætlun Jóns, að á þremur til fjórum öldum myndi Íslendingum fjölga í 100 milljónir sem gerði þá að ráðandi afli vestra og íslenska útrýma ensku og verða ríkjandi tunga í vesturheimi. Tilgangurinn var þó aðallega að sýna veröldinni hvernig óstjórn Dana hefði gert Ísland óbyggilegt. Jón var þarna landflótta eftir að hafa lent saman við Hilmar Finsen landshöfðingja. Sjá nánar hér við 1867 og 1871.
Það átti samt fyrir Jóni að liggja að verða konungkjörinn þingmaður.