Napoleons biti-ban

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

Napoleons biti-banBonapartes: vetur.Um hans herja feigðarflanforleik samdi Pétur.Einn af sex komst enn til Franzörkumla og snauðurannar fangi andskotansafgangurinn dauður.

Glúmur Gylfason · 1812

Heimildir og samhengi

Herför Napoleons inn í Rússland árið 1812.
Andskotar Frakka voru því Rússar.
600 þúsund hermenn Napoleons lögðu af stað í herförina.
400 þúsund hermenn féllu.
100 þúsund teknir til fanga.
100 þúsund komust til baka til Frakklands.

M.a. við 1807 og 1913 er fjallað um áhrif Napoleonsstyrjaldanna á Íslendinga.

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Hér: Forleikurinn 1812 eftir Pétur Tsjaikovskí:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Í prédikun 5. sd. í föstu 2022 fjallaði sr. Skúli Ólafsson um þá sem hafa helgað líf sitt því að öðlast völd yfir öðru fólki:

,,Sannleikurinn er jú fyrsta fórnarlambið í valdabrölti ,,Pílatusa" á hverjum tíma.
... Völd eru vandmeðfarin. ... Biblían birtir okkur dæmi um það hversu harmrænt það getur verið, þegar það fer saman að tróna hátt í píramída valdanna og hafa ekki þá sýn til að bera sem hæfir þeirri stöðu. Ef völdin taka völdin þá verður staðan svört og eitur rennur um æðar mannlegs samfélags. Þar er ekkert satt og ekkert rétt – í slíku umhverfi eru það aðeins duttlungar einvaldsins sem ráða för...og vilji valdhafans ríkir ofar hagsmunum fólksins og æðri gildum".

Myndir