Árið 1812

t.d.

3 vísur frá árinu 1812
  1. 1812Lag: Sá frjáls við lögmál fæddur er

    Ólafi sýndu sóma og art

    þá sunginn var til leiðis
    medalíuna klufu í kvart
    kaleikinn sömuleiðis.

    + fv. stam. Ólafur Stefánsson *1731. Fjögur barna lifðu föður sinn. Þótti lítið til þess koma er engum var boðið eins og þá var venja og fylgdu honum því aðeins nákomnir. Ólafi höfðu hlotnast heiðursgjafir, m.a. stór…

    Hlusta
    dansk medaljeGullbikarViðey, búst. stiptamtmanns
  2. 1812Lag: Ríður fríður riddarinn - Bj.Þ. 900

    Að böðli fundu þeygi þjón

    því varð úr að láta Jón,
    Stafns- frá hóli, hýða Jón
    hann svo aftur flengja Jón.

    Saga frá Skagfirðingum II, 166, úrdráttur: Jón Skúlason og Jón Tómasson voru báðir bændur á Stafnshóli. Þeir lentu í hests- og sauðaþjófnaðarmáli. Í Yfirrétti dæmdist þeim báðum að erfiða ævilangt í Kaupmannahafnar…

    Hlusta
    Hýðing með hrísvendi
  3. 1812Lag: Fyrr var oft í Koti kátt

    Napoleons biti-ban

    Bonapartes: vetur.
    Um hans herja feigðarflan
    forleik samdi Pétur.
    Einn af sex komst enn til Franz
    örkumla og snauður
    annar fangi andskotans
    afgangurinn dauður.

    Herför Napoleons inn í Rússland árið 1812. Andskotar Frakka voru því Rússar. 600 þúsund hermenn Napoleons lögðu af stað í herförina. 400 þúsund hermenn féllu. 100 þúsund teknir til fanga. 100 þúsund komust til baka til…