Ólafi sýndu sóma og art
Lag Sá frjáls við lögmál fæddur er
Ólafi sýndu sóma og artþá sunginn var til leiðismedalíuna klufu í kvartkaleikinn sömuleiðis.
Heimildir og samhengi
+ fv. stam. Ólafur Stefánsson *1731. Fjögur barna lifðu föður sinn.
Þótti lítið til þess koma er engum var boðið eins og þá var venja og fylgdu honum því aðeins nákomnir.
Ólafi höfðu hlotnast heiðursgjafir, m.a. stór silfurbikar og gullpeningur metinn á 60 rd. sem ekki náðist eining um hver hljóta skyldi og skiptu 4 erfingjar, þrír synir og ein dóttir, búinu með þeirri nákvæmni sem hér er lýst.
Hefur þá reynt á flatarmálskunnáttu lögfræðinganna við að gera hlut systur sinnar hálfan við hlut bróður skv. þágildandi lögum.
Gullpeninginn hlaut Ólafur 1776 fyri að hafa þá í 10 ár verkað fisk ,,upp á þann terreneuviska máta". Líka nefnt Nýfundnalandsaðferð. (Jón Þ. Þór, Ránargull, 93.)
Heimild: Guðmundur Magnússon, Íslensku ættarveldin, Veröld 2012, bls. 83.
Einar Hreinsson í Fyrsta ráðstefnuriti annars íslenska söguþingsins, bls. 337:
,,Seta Óafs Stefánssonar á stóli stiftamtmanns hafði ... sannfært stjórnvöld um að hagsmunum ríkisins væri ekki best borgið í höndum Íslendings ... hafði misreiknað áhrif íslenska tengslanetsins sem tókst alla 19. öldina að endurnýja sig innanfrá með hjálp hjúskaparpólitíkur".