Að böðli fundu þeygi þjón
Hljóðbrot0:00
Lag Ríður fríður riddarinn - Bj.Þ. 900
Að böðli fundu þeygi þjónþví varð úr að láta Jón,Stafns- frá hóli, hýða Jónhann svo aftur flengja Jón.
Heimildir og samhengi
Saga frá Skagfirðingum II, 166, úrdráttur: Jón Skúlason og Jón Tómasson voru báðir bændur á Stafnshóli. Þeir lentu í hests- og sauðaþjófnaðarmáli.
Í Yfirrétti dæmdist þeim báðum að erfiða ævilangt í Kaupmannahafnar þrælavarðhaldi en höfðu áður tekið út kaghýðingu við staur skv. héraðsdómi.
Oft var erfitt að fá böðul eftir að Þorleif leið sem hjó Ingibjörgu seku (sjá 1789). Sm. Jóni Espólín datt þá það snjallræði í hug að láta Stafnhólsbændur hýða hvor annan. (Dómabók Skag. 1812; sjá og 1802).
Stafnshóll á mynd Mats Wibe Lund:
MyndMats Wibe Lund (opnast í nýjum flipa)