Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1813
1813
1813

Fórst nú enn á Skeiði skip

Hljóðbrot0:00

Lag Eins í vöku og eins í blund - Bj.Þ. 829

FFórst nú enn á Skeiði skipvið skammarræður Drafnarupp- þó reyndust gjarnan gripgrönnum Þorlákshafnar.

Glúmur Gylfason · 1813

Heimildir og samhengi

Saga Eyrarbakka eftir Vigfús Guðmundsson, bls, 474: Eyrarbakkaskip, sem siglt hafði þangað síðan 1795, strandaði 30. maí á (Þorláks-) Hafnarskeiði vestan Ölfusáróss. Skipverjum bjargað og góss og skip selt á 9.300 rd.
Við Hafnarskeið fórust t.d. skip 1806, skipstjóri fórst, góssi bjargað;
1801: skipverjar af Ólafsvíkurskipinu Fru Elisabet fóru í bát sem hvarf, en nokkur lík rak, góss selt á 3.031 rd;
1781 póstjaktin, fórst áhöfn, auk 10 björgunarmanna af Eyrarbakka;
1718 , enn á þessum sama stað, rak þar upp stóra þrímastraða stríðsskipið Göteborg, fórust 7, en bjargað meira en 170 mönnum;

1337 braut þar tvö skip og smíðað upp úr þeim eitt og siglt utan næsta ár;
892 braut á Hafnarskeiði (þá nefnt Vikarskeiði) skip sitt Auður djúpúðga við komu sína til landsins.

Aragrúi skipa fórst við og á sjálfri Eyrarbakkahöfn.

Sífelldur timburskortur var tilfinnanlegastur á rekalítilli suðurströndinni. Komu þar á móti tíð skipströnd sem gáfu af sér smíðavið enda voru uppboðin vel sótt. Sjá 1888.

Heimild: fyrrnefnd Saga Eyrarbakka.
Mynd: Myndffar.is (opnast í nýjum flipa)

Á fjórum blaðsíðum í 2. bindi Fjallkirkjunnar frá bls. 248 lýsir Gunnar Gunnarsson aðförunum við skipsstrand.

Myndir

Einnig frá árinu 1813

  • Frúin hans Gísla, hún Guðrún, veik
  • Járn og öxi á nú spara
  • Castenskjold meina því trauðla tengist
← 1812Napoleons biti-ban1813 →Frúin hans Gísla, hún Guðrún, veik