Árið 1866

t.d.

4 vísur frá árinu 1866
  1. 1866Lag: Augun mín og augun þín

    Á Miðdalsbúi í Mosfellssveit

    margt þarf fólk að tala
    um miltisbrand ei neitt bóndi veit
    bíður eftir RALA.

    Sigurður Sigurðarson dýralæknir, Bændablaðið, 24. árg., 14. tbl. 2018, bls. 43: ,,Miltisbrandurinn kom frá Afríku. Sýkingin barst til Íslands með innfluttum ósútuðum húðum um 1865, fyrst og fremst frá Afríku. Veikin kom…

    Hlusta
    Sigurður dýralæknir og Ólöf Halldórsdóttir
  2. 1866Lag: Tíu litlir negrastrákar

    Nú má bæði brosa og hlæja

    bretta sig og fetta
    klípa stelpur æpa og æja
    ítem spyrja frétta.

    Húsagatilskipunin frá 1746 felld úr gildi með nýjum hjúalögum frá 1865 sem taka gildi 1866 og gilda til 1928/9. Þar hangir þó sumt eftir svo sem líkamlegar refsingar, sem húsbændum var enn heimilt að beit hjú sín. Sjá…

    Hlusta
    +3
  3. 1866Lag: Augun mín og augun þín

    Fjallaskáldsins skrikul slóð

    skaust í augað flís!?
    En Kristján elskar þessi þjóð
    þar til blóðið frýs.

    Kristján Jónsson, (1842-1869) ,,Fjallaskáld”, orti ,,Þorraþrælinn 1866”. Þar er hendingin: ,,frýsi í æðum blóð”. Frá vinnumannsferli KJ á Hólsfjöllum varð til kenninafnið Fjallaskáld, þótt fæddur væri í Kelduhverfi og…

    Hlusta
  4. 1866Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Fótajárn í fangavist

    farið hár að grána
    en Saura-Gísla söm er list
    sýnist lítið skána.
    1 erindi til viðbótar

    ,,Gísli Jónsson (1820-1894) bóndi á Saurum varð landsþekktur fyrir barneignir og ,,hirðusemi", sem síðan leiddu til langvarandi málaferla. Gísli var og líklega eini Dalabóndinn sem þurfti danskt herlið til að handtaka".…

    Hlusta
    Saura-Gísli JónssonSaurbæjar-Gísli, hvað?!