Dómkirkjuklukkan ding-dong slær.
Lag Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619
Dómkirkjuklukkan ding-dong slær.Doktor Valtýs fylgi grær.Leikfélagið lofsorð fær.Lagi grafofóninn nær. .
Í mér, sagði Einar Ben,einhver djöfull leynisthugmynd fæðist hjá mér, enhandónýt svo reynist.
Úr kaupstað Daníel fetið fermeð fón uppi á höfði sértil dansiballa lúður lérað léttist sporið ungum hér.
Heimildir og samhengi
H. Th. A. Thomsen kaupmaður, sonur Ditlevs eldra (1855, 1857), gefur nýja stundaklukku í turn Dómkirkjunnar sem enn er þar og hefur það fram yfir þá eldri, Dómkirkjuúrið, að hún slær, - klykkir;
Vefurkirkjuklukkur.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Á eftrfarandi slóð er rakið það sem vitað er um sögu klukkunnar og úrsins yfirleitt.
Vefurvidenskab.dk (opnast í nýjum flipa)
Valtýr Guðmundsson (1860-1928), kynnir tillögu dönsku stjórnarinnar um Íslandsráðgjafa búsettan í Kaupmannahöfn, nefnd Valtýska. - (1902).
Hafði ári fyrr sent bréf til allra þingmanna nema Benedikts Sveinssonar um að hætta tilgangslausu stagli (Benedikts Sveinssonar) um endurskoðun stjórnarskrárinnar sem hefti beinlínis framfarir og kvaðst vita að brátt fengist íslenskur ráðherra.
Guðjón Friðriksson, Einar Benediktsson I, 183:
,,Margir þingmenn eru orðnir leiðir á forystu hans (BS) og vilja komast út úr þeirri sjálfheldu sem baráttan fyrir endurskoðun stjórnarskrárinnar er komin í. Valdabarátta er hafin á Alþingi ... Tryggvi Gunnarsson og Björn Jónsson vilja snúa sér að hagnýtari verkefnum fyrir þjóðina í stað þess að hjakka alltaf í sama farinu”.
Úrdráttur úr sama, bls. 212 og 217: Dagskrá, Einars Benediktssonar, birti bréf Valtýs 9/7 1896 til allra þingmanna nema föður hans. Einar hafði í ræðu, riti og ljóðum hvatt til framtaks jafnvel umfram Valtý og Tryggva og rifist við föður sinn, en stóð nú með honum sem til blaðsins hafði lánað veð í eignum sínum.
Einar hvatti menn í Dagskrá til að stofna verkalýðsfélög. Prentarar tóku hann á orðinu og þetta ár var ,,Hið íslenska prentarafélag stofnað, en Einar neitar að gera samning við það”.
Einar orti baráttusöng verkalýðsins og sagði sjálfur: ,,Í mér eru tveir menn, sjentilmaður og dóni” ... tekur um handlegg sér og segir: ,,Það er einhver djöfull sem stjórnar hversdagslífinu””.
,,Sumir alkohólistar ...tala um að í þeim búi einhver djöfull eða demon sem stjórni drykkju þeirra" (Óttar Guðmundsson, Tíminn og tárið, bls. 233). Sjá og Rómverjabréfið 7: 19.
Ríkisráðsákvæðið olli því að ,,Valtýskan” náði ekki samþykki á þingi fyrr en 1901. Andstæðingar Valtýs mynduðu Heimastjórnarflokkinn og sögðu ríkisráðsákvæðið gera Valtýskuna óalandi og óferjandi. Dæmið snerist svo við þegar þeir fengu ráðherrann og hann settist í ríkisráðið. (1914).
Það, að Valtýr, en ekki landshöfðingi, var látinn kynna tillögu Íslandsráðgjafa á alþingi segir Þorsteinn Thorarensen vera sökum þess að Magnús hafði áður mælt með stjórnbreytingartillögu Bendedikts Sveinssonar sem stjórninni þótti ótæk. (Í fótspor feðranna, bls. 151).
Aðrar heimildir: Öldin sem leið;
Þórir Stephensen: Dómkirkjan í Reykjavík.
Matthías Viðar Sæmundsson og Jón Þ. Þór hafa ritað ævisögu Valtýs Guðmundssonar.
Leikfélag Reykjavíkur stofnað;
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Sigfús Eymundsson (1837 -1911) flytur inn talvél. Frumgerðina fann T. A. Edison upp 1877, en Emile Berliner fullkomnaði 1887. Plötuspilarann byrjað Edison að framleiða í BNA 1888. Sigfús hélt ,,grafofóntónleika" í Gúttó. Sigfús bjó í húsinu á horni Lækjargötu og Austurstrætis.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Myndin sýnir grammófóninn sem Daníel Daníelsson (1880-1932) keypti af Sigurði bróður sínum Eyrarbakka og reið með á höfði sínu - varla þurrbrjósta - austur að Guttormshaga í Holtum. Grammófónn þessi hafði áður verið í Húsinu á Eyrarbakka. Gestkvæmt varð í Guttormshaga eftir að ,,grafófón" Daníels kom og var þá boðið upp á konserta. Á hvaða ári kaupin gerðust er ekki ljóst.
Guðmundur rithöfundur, sonur Daníels, segir í bók sinni, Dómsdagur, bls. 20: ,,Ekki vantaði hljómlistina í bæinn: tvær harmonikur, tvær munnhörpur, stór grænlúðursgrammifónn ásamt hundrað hljómplötum með hvíta hundinum, His Masters Voice utaná".
Heimild: Viðtal Guðmundar Daníelssonar við Jón Jónsson frá Vestri-Loftsstöðum, f. 1894 í ,,Þjóð í önn", bls. 216. Útg. 1965. Áður birt í blaðinu Suðurland. Sonur Daníels, Þorsteinn, bjó búi í Guttormshaga eftir föður sinn þar sem grafófónninn varð efttir - segir Guðrún dóttir Þorsteins - nú búsett á Selfossi, þar sem gripurinn er varðveittur hjá henni og manni hennar, Hilmari Hoffriz, sem gerði tækið upp. Er grafófónninn sem nýr og gegnir sínu upphaflega hlutverki.
Ekki verður séð hvor kom fyrr til Íslands, sá úr Húsinu, þá P. Nielsens, eða grafófónn Sigfúsar í Reykjavík.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)