Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1897
1897
1897

Koma núna kútterar

Hljóðbrot0:00

Lag Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619

KKoma núna kútterarkempur hyggja að seglum þartogarar þó tímans svaren Tryggvi er á fjármagn spar.

Glúmur Gylfason · 1897

Heimildir og samhengi

Ásgeir Jakobsson, Einars saga Þorgilssonar, bls. 112, 126, úrdr: Fyrstu seglatogararnir keyptir notaðir frá Bretum er byrjuðu veiðar ári fyrr með stærri gufuknúnum togurum, 150 - 200 lesta.
Seglatogararnir voru hér kallaðir kútterar, sbr. skutlag þeirra. Fram til 1906 urðu þeir á annað hundrað, flestir á SV-landi. Landsbankinn lánaði til kaupanna.
Þegar menn sáu sig um hönd og girntust botnvörpungana, vildi bankastjórinn, Tryggvi Gunnarsson, fá eldri skuldina greidda áður en lánaði til nýrra kaupa.

1904 tók Íslandsbanki til starfa, og lánaði til útgerðar.

Guðjón Friðriksson: Einar Benediktsson I, 200: ,,16. júní 1896 ruddist hann (EB) fram á ritvöllinn í Þjóðólfi ... þar hvatti hann Íslendinga fyrstur manna til að taka upp togveiðar með gufuskipum í stað þess að halda sig við vélvana skútuútgerð ... Moldviðri hófst á síðum hinna blaðanna ... einna verst bregst Tryggvi Gunnarsson bankastjóri við. Hann finnur togveiðum allt til foráttu”.

Vefurdive-explorer.com (opnast í nýjum flipa)

AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1897

  • Collingwood fékk köllun til
  • Þá Herdís Benedictsen dó
  • Dómkirkjuklukkan ding-dong slær.
← 1896Þegar sauðasölu lauk1897 →Collingwood fékk köllun til