Þá Herdís Benedictsen dó
Þá Herdís Benedictsen dódrengskapur hélt velli.Húsmæðraskóli hennar bjóog haldinn á Staðarfelli.
Heimildir og samhengi
+ 23. ágúst Herdís Benedictsen: ,,Mikilhæf kona, glæsileg í sjón, talin af kunnugum ,,einhver hin besta og göfugasta kona" og heimili hennar og manns hennar (Brynjólfs Benedictsen kaupm., Flatey, Bogasonar fræðimanns - þau systkynabörn frá Boga) eitt hið merkasta menningarheimili vestanlands á þeirri tíð. Átti hin síðari ár heima í Reykjavík og dó þar. Sá um að manni sínum látnum að handritasafn hans gengi til Landsbókasafns. Gaf 3/4 af skuldlausum eigum sínum eftir sinn dag til stofnunar kvennaskóla á Vesturlandi; á vegum þess sjóðs var stofnaður húsmæðraskóli á Staðarfelli.
Börn þeirra 14 dóu í bernsku nema ein dóttir, Ingileif, sem dó á undan móður sinni". (Orðrétt úr Ísl. æviskrám).
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa):
,,Á fyrstu áratugum 20. aldar bjuggu hjónin Soffía Gestsdóttir og Magnús Friðriksson á Staðarfelli. Einkasonur þeirra drukknaði ásamt fleirum af bát sem hvolfdi fyrir landi jarðarinnar 1920Wikiwand (opnast í nýjum flipa) og í minningu hans gáfu foreldrarnir jörðina til stofnunar húsmæðraskóla. Skólinn hóf starfsemi 1927Wikiwand (opnast í nýjum flipa) og starfaði til 1976Wikiwand (opnast í nýjum flipa). Árið 1980 var svo endurhæfingarstöð á vegum SÁÁ komið á fót í húsnæðinu og hefur hún verið rekin þar síðan". Sjá 1916.
Hér birtist mynd af Herdísi og umfjöllun um hana, en hún var dóttir Guðmundar Schving, þess sem getið er hér 1809.
Smellið á HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa)