Collingwood fékk köllun til
Lag Dvel ég í Draumahöll
Collingwood fékk köllun tilað kynnast Íslendingumhests á baki hér um bilhann reið landið kring um.Þorvaldur Bjarnar Egyptóeins og lófann þekktibreiddi út kort af Kaíróklerkur enska blekkti.
Heimildir og samhengi
Frá Íslandsreisum geta menntaðir erlendir ferðamenn á 18. og 19. öld um fleira en eymd og volæði. Í moldarhreysunum leyndust líka háskólagengin skáld og spakvitrir prestar sem gátu haldið uppi samræðum á forntungum um heima og geima. Harboe fann sr. Þorstein Ketilsson á Hrafnagili, Henderson þá sr. Jón Þorláksson á Bægisá og Jón lærða Jónsson á Möðrufelli í Eyjafirði og 1897 gisti Collingwood að sr. Þorvaldar Bjarnarsonar á Melstað. Þorvaldur var guðfræðingur frá Höfn og naut virðingar á Íslandi fyrir hrossarækt og hestamennsku, en kynnu prestar bæði til búskapar og að sitja hest var á þá hlustað af stólnum og nýtur séra Þorvaldur þessa hvort tveggja enn í dag.
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
Myndir Collingwoods á sýningu:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Á Íslandsferð Collingwoods 1897 var samferðarmaður hans, dr. Jón Stefánsson. Hann ritaði bókina Úti í heimi. Þar stendur á bls. 121:
„Við komum við hjá fræðimanninum séra Þorvaldi á Melstað. Á borðinu hjá honum ægði saman bókum, blöðum og matarleifum, en vel skemmtum við okkur í samræðum við séra Þorvald.
Einu sinni komu til hans tveir enskir herforingjar frá Egyptalandi. Þeir áttu báðir heima í Cairó. Prestur fór að tala við þá um ýmis musteri í þeirri borg - og um þau torg og þær götur, sem að þeim lægju. Foringjarnir töldu hann hafa villzt eitthvað á þessum götum og torgum. Séra Þorvaldur sótti þá gömul og ný kort yfir Cairó og sýndi foringjunum, að hann hefði rétt fyrir sér, en þeir ekki. Sveitaprestur á afskekktri eyju norður undir heimskautsbaug vissi meira en þeir um borg sem þeir höfðu búið í um tíu ára skeið!"
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
(1821, 1822, 1819)