Í karlaveldi kemur brestur

Í karlaveldi kemur bresturklyfjar þyngjast sonumBríet flytur fyrirlesturum fríheit handa konum.

Glúmur Gylfason · 1887

Heimildir og samhengi

,,Í lok desember 1887 hélt Bríet Bjarnhéðinsdóttir opinberan fyrirlestur í Reykjavík fyrir fullu húsi, fyrst kvenna. Engin skipulögð hreyfing var að baki, hún tókst á við baráttuna ein á báti. Eitt kvenfélag hafði verið stofnað í Reykjavík, Thorvaldsensfélagið, en það einbeitti sér að líknarmálum. Greinilegt er að Bríet hafði kynnt sér bók John Stuart Mills um Kúgun kvenna sem kom út í Englandi 1869 og Georg BrandesVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa) þýddi sama ár á dönsku því að hún vitnaði í þá báða í fyrirlestrinum. Hún fjallaði um það sem hún þekkti best, uppeldi og menntunarleysi kvenna almennt og launakjör vinnukvenna sérstaklega og sagði að hugsunarhátturinn þyrfti að breytast".
Heimild:
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

Myndir