Löngum við Svaðbæli loðir sú rykt
Lag Dvel ég í draumahöll
Löngum við Svaðbæli loðir sú ryktað lukkan það elti´ á röndumÞorvalds- nefnd eyri og þar er nú byggtaf þrótti úr efnum vöndumá hlöðunnar frægð ei fær það skyggtað frönskum er reist af ströndumdafnar hjá Þorvaldi dautt sem kviktog drýgist í Elínar höndum.
Sýslumaðurinn, skæður, skýrskemmtilega frá sagðier Þorvaldi kenndi í góðum gírað græða á augabragðiskáldið keypti hlöðu og heyhinn í útgerð lagðiaftur komu ekki fleyEinar drakk og þagði.
Heimildir og samhengi
Úr Árbók Ferðafélagsins 1972, höf: Haraldur Matthíasson: ,,Þorvaldur Björnsson (1833-1922), dóttursonur Magnúsar á Leirum Sigurðssonar, og kona hans, Elín Guðmundsdóttir frá Drangshlíðardal, byrjuðu búskap 1863 í Núpakoti undir Eyjafjöllum með 14 hross og eina kind sem slátrað var um haustið.
1864 strandaði franskt skip í Skaftafellssýslu og skömmu síðar annað við Vestmannaeyjar og það þriðja á Eyvindarhólafjöru og sótti Þorvaldur öll uppboðin og beitti klókindum. Fara sögur af honum á slíkum uppboðum allt til Þorlákshafnar.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Verslun hafði hann að Núpakoti. 1866 er hann orðin eigandi Svaðbælis og byggði þar upp frá grunni öll hús af miklum myndarskap svo sem hesthús fyrir 30 hesta, 32ja bása fjós, fjárhús fyrir 250 ær og 150 sauði og hlöðu úr timbri og járni 54 álna langa og 19 1/2 á breidd. Sagt er að hann hafi faðmað Lærðaskólann og skyldi hans hlaða verða einni alin lengri og tók hún 3500 hesta töðu.
Fullbyggt var að Svaðbæli 1888 og nefndi hann þá jörðina Þorvaldseyri. Talinn var hann þá einn auðugasti bóndi Íslands.
Árið 1905 fluttist hann til Reykjavíkur og hóf togaraútgerð”.
4. mars, sama ár, keypti sm. Einar Benediktsson, skáld, Svaðbæli og byggði af stórhýsi á Stóra-Hofi á Rangárvöllum, sem brann 3. júní 1910.
Magnús Á. Árnason, Gamanþættir, 118: ,,Mér hafði alltaf þótt það einkennileg ráðstöfun að rífa niður tveggja hæða hús á Þorvaldseyri og flytja timbrið allt á hestum út að Stóra-Hofi og endurreisa það þar. Vötnin, sem fara þurfti yfir óbrúuð, voru sjö".
Ævisaga Einars eftir Guðjón Friðriksson, II, 138, I, 309, I, 306: ,,...náði Einar þeim tökum á Þorvaldi sem riðu honum að fullu fjárhagslega. Hann leiddi gamla manninn, sem enginn hafði áður glapið í hagsýni, út í brask. Þorvaldur varð öreigi”.
Vigfús Guðmundsson, Saga Eyrarbakka, bls. 486, getur Þorvaldar við þrjú önnur frönsk strönd: á Steinsmýrarfjöru fékk hann 1881 heillegt skip með rá og reiða og dálitlu salti á 20 kr.! 1882 við Eyrarbakka og 1886 á Hafnarskeiði vestan Ölfusár og kærðu bændur veru hans þar til stiptsyfirvalda - þetta væri þeirra strand.
Kjartan Sveinsson, Afbrigði og útúrdúrar, 113: ,,...ströndin hættulega, sem í rauninni meinaði strandarbúum allt sjávargagn hafði þó einn kost. Hún gaf þeim franskar skútur með rá og reiða og hvers kyns björg, þegar byljir og brim ráku þessi skip á land".
Sm. Einar Benediktsson bjó á Hofi á Rangárvöllum, bæ Marðar gráa Valgarðssonar, sem gaf önnur ráð en Njáll.
Sverrir Kristjánsson: Horfin tíð, Bóndinn á Eyri, 106: ,,Stranduppboðin voru ævintýri og draumur hins íslenska sveitamanns. Þarna rak á fjörur húsavið og járn til smíða, kopar og koníak, salt og skipsbrauð, erlendar vörur sem venjulega varð að sækja á klyfjahestum um langan veg yfir fjöll og ófærur, - þarna lá öll þessi dýrð í flæðarmálinu, föl hæstbjóðanda. Það var oftar en ekki að hinn naumi og aðsjáli íslenski bóndi ...bauð í hina sjóreknu vöru án þess að hirða um gjaldþol".
Margt líkt með skyldum. Í sögu Einars eftir Guðjón Friðriksson, bls. 43, kemur fram hvers vegna móðir hans, Katrín Einarsdóttir fékk engan arf eftir föður sinn, Einar Stefánsson, fyrr stórbónda á Reynistað, sem þegið hafði ráð Benedikts Sveinssonar. (Sjá 1874).
Aðrar heimildir:
Ritsafn Eyjólfs Guðmundssonar 301 og 309;
Gunnar M. Magnús, Ósagðir hlutir um skáldið á Þröm, 23;
Skúli Helgason: Saga Þorlákshafnar;
Vefurthorvaldseyri.is (opnast í nýjum flipa)
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
Íslenskar æviskrár V., bls. 533 greina frá dóttursyni Þorvaldar, nafna hans f. 1918 að síðara nafni Hlíðdal, verkfræðimenntuðum í USA. Hann fórst í flugslysi á Hellisheiði 1948.