Bjarna- fyllti bátinn mar
Lag Snemma lóan litla í
Bjarna- fyllti bátinn maren Bakka, hans og Stokkseyrarlíf fyrir sjónum svífur:á orgel lék öll ættin þareins og sáði upp hún skarennþá virða hrífur.
Heimildir og samhengi
Bjarni Pálsson f. 18.06. 1857 í SyðraseliÍsmús (opnast í nýjum flipa), Stokkseyrarhreppi, og bátsverjar fórust í brimlendingu við Þorlákshöfn á báti Bjarna 24.02. 1887. Höfðu snúið við frá Eyrarbakka og gengið á kraftana við að berja vestur í aftakaveðri.
Bjarni lærði á orgel hjá mæðgunum, frú og ungfrú Sylvíu Thorgrímsen í Húsinu á Eyrarbakka.
Lýður Pálsson, Húsið á Eyrarbakka, bls. 30: ,,Með Sylvíu Thorgrímsen (1819 - 1904) kom evrópsk tónlist á Bakkann. Sylvía Thorgrímsen lærði á píanó í Kaupmannahöfn árin 1840 til 1847, sennilega fyrst íslenskra kvenna. Með þessa kunnáttu kom hún á Eyrarbakka og fékk almenningur brátt að kynnast tónlist helstu tónskálda í Evrópu.
Sylvía Thorgrímsen og Sylvía dóttir hennar og nafna, tóku snemma efnilega nemendur í nám í hljóðfæraleik. Einn þeirra var Bjarni Pálsson í Götu á Stokkseyri sem varð einn færasti organisti héraðsins. Hann stóð fyrir námskeiði í orgelleik fyrir tilvonandi organista þegar orgel voru keypt í kirkjur héraðsins á áttunda tug 19. aldar. Meðal nemenda voru bræður hans frá Syðra-Seli í Stokkseyrarhreppi, þeir Jón og Ísólfur. Mikil tónlistarstarfsemi fylgdi bræðrunum og gætti áhrifa þeirra á margvíslegan hátt í íslensku tónlistarlífi".
Eftir að Lýður skrifaði þetta fannst svo klaverið sem Sylvía flutti sjóveg frá Kaupmannhöfn til Eyrarbakka. Þegar lárétt flygillaga píanó var þangað keypt, þá fékk systurdóttir hennar, Helga Vigfúsdótti hljóðfærið um 1867, keypt eða í brúðkaupsgjöf þegar hún giftist innanbúðarmanninum Siggeir Torfasyni.
2020 gáfu afkomendur Helgu píanóið til Hússins.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Af því sem ritað hefur verið um Bjarna, bæði kosti hans og galla, sést að hann hefur verið snillingur og það í fleiru en tónlist, t.d. tungumálagarpur:
HljóðritÍsmús (opnast í nýjum flipa)
Páll Kr. Pálsson í Organistablaðinu 1972: ,,Bjarni Pálsson, varð ungur forsöngvari í Stokkseyrarkirkju og fyrsti organleikari þar eftir að hljóðfæri kom í kirkjuna, árið 1876. Bjarni var mikill mannkosta- og gáfumaður og þótti það hinn mesti mannskaði er hann drukknaði ásamt 5 öðrum við Þorlákshöfn í febrúar 1887. Þar fórust og 2 aðrir organistar. Bjarni varð aðeins 29 ára gamall".
Bjarni á eitt lag í sálmabókinni frá 1997 og er það við sálm nr. 454.
Meðal barna Bjarna var Friðrik, organisti og tónskáld í Hafnarfirði.
Bræður Bjarna, Jón, Ísólfur og Gísli tóku við organistastarfinu að bróður sínum látnum.
Of langt yrði að nefna allt tónlistarfólk af þessari ætt, en enn lifa góðu lífi í hug og hjarta þjóðarinnar lög Ísólfs, bróður Bjarna, og Friðriks, sonar Bjarna, sem og tónverk, orgelhljóðritanir og sönglög tónskáldsins Páls Ísólfssonar, organista og tónskálds (1893-1974), sjá 1893.
Á fyrstu 20 blaðsíðum bókar Guðna Jónssonar, ,,Grímur Gíslason í Óseyrarnesi", er fjallað um forfeður Margrétar Gísladóttur, Syðra-Seli, móður Bjarna og þeirra bræðra. Segir þar á bls. 46, að Bjarni Pálsson hafi á meðan hans naut við verið samstarfsmaður Gríms, frænda síns, við að undirbúa þau stsórvirki sem getið er við árið 1892.
Á mynd frá Héraðsskjalasafni Árnesinga, efri röð f.v: Sólveig Thorgrímsen, Anna Lefolii, Sigríður Þórðardóttir Guðmundsson, Sylvia Th. Lynge; neðri röð: Eugenía Th. Nielsen, Ásta Júlía Thorgrímsen.
Eyrarbakki ávallt nefndur Bakki í tali fólks, a.m.k. á meðan hann var verslunarmiðstöð Suðurlandsundirlendisins, segir Oddur Oddsson í bók sinni, Sögnum og þjóðháttum, 1941.
Tengt efni á öðrum vefjum, smellið á:
Bjarni Pálsson. Hljómlistin. 1. desember 1912, bls. 18.Tímarit.is (opnast í nýjum flipa)
Bjarni Pálsson. Æskan. 1. júní 1941, bls. 63.Tímarit.is (opnast í nýjum flipa)
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)