Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1887
1887
1887

Hart nú þjarmar Þingið að

Hljóðbrot0:00

Lag Yfir kaldan eyðisand

HHart nú þjarmar Þingið aðþéttbýlis lausamönnumþeim sem ekki standa í staðstefnum, sektum, bönnum.

Glúmur Gylfason · 1887

Heimildir og samhengi

Breyttir tímar í evrópu, en ekki enn hér:
Gunnar Þór Bjarnason: Þegar siðmenningin fór fjandans til, bls. 15, upplýsir að hagvaxtarskeið hafi byrjað á Íslandi um 1890 eftir að tekin var upp fríverslunarstefna í evrópu.
Að tillögu Landsnefndarinnar síðari fengu 6 staðir, hver á sínu landshorni, kaupstaðarrétt 1786. Þar skyldu kaup- og iðnaðarmenn fá ókeypis lóð frá kóngi og skattfrelsi í 20 ár. Ekki þóknaðist stórbændum og landeigendum þetta. Þeir vildu að sjósókn væri aukabúgrein sem bændur rækju með sínum vinnumönnum og fengu 1783, með klókri aðferð, vistarbandið hert og ferðafrelsi skert. Hélt Reykjavík ein kaupstaðarréttinum.
Nefndri aðferð lýsir Gísli Gunnarsson í Upp er boðið Ísaland, bls. 34:, sem lesa má hér við 1783.
Ráðgjafarþing stórbænda, landeigenda og embættismanna sem stofnað var 1845 hafði fylgt sömu stefnu.

Íslensk þjóðfélagsþróun 1880-1990, Sigurður G. Magnússon, bls. 319: ,,...var bændastéttin í mikilli varnarstöðu ...og neytti allra bragða til að hafa hemil á þeirri þróun sem stefndi í frjálsræðisátt".

Iðnbylting á Íslandi, útg. 1987, bls. 25, Guðmundur Hálfdánarson:
,,1887...samþykkti Alþingi lög ...sem gerðu mönnum enn erfiðara en áður að setjast að og stofna heimili í þéttbýli ...krafist var að þurrabúðarmenn ættu 400 kr. eign skuldlausa til að fá húsmennskuleyfi og þar að auki var hverjum húsmanni gert skylt að rækta í það minnsta 400 fermetra lóð í kringum hús sitt".
FréttVísir (opnast í nýjum flipa)

Séra Sigurður Stefánsson í Vigur taldi tómthúsmennskuna ,, ...átumein þjóðarinnar og undirrót eymdar og volæðis. ...Í málflutningi þingmanna má greina sterkan ótta við upplausn sem ...myndi fylgja breyttum framleiðsluháttum ...Takmörkun á húsmennsku átti að koma í veg fyrir að aðrir en bændur stofnuðu heimili”.

Gunnar Karlsson fjallaði um erind GH og sagði: ,,Og það má spyrja hvort við höfum efni á að lá sveitamönnum 19. aldar það að þeir gátu ekki ímyndað sér iðnaðarþjóðfélag. ...En hvernig gengur okkur að ímynda okkur þá samfélagsgerð sem tekur við af iðnaðarþjóðfélaginu?” (Bls. 34 í sömu bók).

Slóð Skjaladags, sem sýnir Blönduós 1884:

Myndi2.wp.com (opnast í nýjum flipa)

Myndir

Einnig frá árinu 1887

  • Þrenging, mæðu' og þyngsli jók
  • Bjarna- fyllti bátinn mar
  • Í karlaveldi kemur brestur
← 1886Thorgrímsen hættir hjá Lefolí.1887 →Þrenging, mæðu' og þyngsli jók