Fellsstrendinga fýsti sjá
Lag Fyrr var oft í Koti kátt
Fellsstrendinga fýsti sjáfleyin sigla um rastirsögðust vera settir hjáí sömu sporum fastir.Um skipin lengi staðið styrr- strönduðu og sukku -tíðum biluð, tóm og kyrruns Tang loks gerði lukku.
Sýslumaður mat svo þámálavexti og sagði:,,Sé gnoðin okkar, greitt má fágróða á augabragði".Endaði á aðra leiðum þarf lítt fjallagróðinn stóri beið og beiðbókhald sýndi halla.
Heimildir og samhengi
Hér segir frá félagi um flóabátssiglingar um sunnanverðan Breiðafjörð, sem ,,enginn var í vafa um að mikill hagnaður myndi verða af" (Minningabók Magnúsar Friðrikssonar, Staðarfelli, bls. 178).
Í janúar 1916 samdi stjórnin um smíði 65 smálesta skips, Svans, sem sigldi frá Danmörk til Íslands 12. október það ár. Heimildarmaður, Magnús Friðriksson, Staðarfelli á Fellsströnd var í stjórn félagsins.
Minningabók Magnúsar, bls. 172: ,,Siglingar inn á Hvammsfjörð hófust ekki að marki fyrr en 1896, dýpi fjarðarins var mælt árið áður. ...opnuðust (þá) augu almennings fyrir þörfinni á góðum samgöngum. Vegir um sýsluna voru lélegir og ...dýrt myndi verða að koma þeim í gott horf. ...því einsætt að leggja áherslu á góðar samgöngur meðfram ströndum sýslunnar. Í Dalasýslu voru þá um 3000 íbúar".
Úrdráttur: Sýslumaður, Björn Bjarnarson, keypti með Suðurdalmönnum lítinn gufubát af Birni Kristjánssyni kaup- og alþingismanni m.m. Báturinn sökk í stormi þar sem hann lá mannlaus fyrir akkerum á Hvammsfirði.
Þá gerði Björn sýslumaður tilraun til fjársöfnunar fyrir kaupum á 20 tonna vélbát, en bar ekki árangur.
1905 veitti alþingi kaupmanni á Ísafirði, Pétri bróður Bjarnar sýslumanns, fjárstyrk til að halda uppi ferðum sumarlangt á Breiðafirði með 12 smálesta hálf vélarvana báti, sem stóðst hvorki strauma né storma á þeim slóðum.
,,Næstu tvö árin annaðist Tangverzlun í Stykkishólmi flóabátsferðirnar um Breiðafjörð. ...Báturinn hafði verið notaður við hvalveiðar frá Önundarfirði. ...Mörgum Breiðfirðingum líkaði báturinn vel. Hann var hraðskreiður og yfirmenn hans greiðviknir við hvern sem í hlut átti. Og var það metið að verðleikum. Hins vegar þótti ýmsum að eigendur bátsins notuðu hann fullmikið í eigin þarfir til hagsmuna fyrir verslun sína.
...Árið 1908 tók félag í Reykjavík að sér flóabátsferðirnar.
(Gufubátur og hét Reykjavík)... í annarri ferð strandaði (Reykjavíkin) og sökk samstundis ... við Skógarnes í Miklaholtshreppi."
Úrdráttur: Milljónafélagið sendi þá gufubát sinn, Geraldine, til að halda uppi flóabátsferðunum. Lýst er endurteknum árekstrum Breiðfirðinga og yfirmanna á Geraldine, sem virtu, hvorki áætlanir um stundir né daga eða meðferð farms, sem kostaði skaðabætur og fórst svo báturinn um haustið.
,,1909 tók Tangverslun ...flóabátsferðirnar að sér á ný og naut til þess styrks (og) hélt vel áætlun enda hraðskreiðir (bátar). ...Sú skoðun ríkti allvíða, að Tangverslun notaði þessa báta helzt til mikið til eigin þarfa. Þó var það fyllilega viðurkennt að ...virtu samninga. Yfirmenn þessara skipa voru jafnan sérstaklega duglegir og áreiðanlegir og þótti öllum vænt um þá.
Tangverslun varð þó fyrir allhörðum dómum hjá sumum, sem töldu hana græða of fjár á ferðunum. Vegna þessarar öfundar ...jókst stefnu Björns sýslumanns fylgi, en hún var sú, að stofna bæri hlutafélag, er keypti hentugan bát til ferðanna ...og myndi þá allur hagnaðurinn af ferðunum og rekstri bátsins renna í vasa héraðsmanna sjálfra".
Á 9 næstu blaðsíðum segir af félagsstofnun og almennri hlutafjársöfnun í Snæfellsnes- Dala- og A-Barðastrandarsýslum auk fjár frá alþingi og úr fyrrnefndum sýslusjóðum.
Reksturinn gekk þannig, að allt hlutafé var afskrifað 1922. Skipið selt 1924 en dugði ekki fyrir skuldum, sem sýslusjóðir og ríkissjóður greiddu, en bændur í gegnum Kaupfélag Hvammsfjarðar og Kaupfélag Saurbæjar.
Nafn skipsins var Svanur og sótt til skips Odds Sigurðssonar, lögmanns 1714 til 1725, sem fórst við Látrabjarg1714 ,,af völdum galdramannsins Þormóðar (Eiríkssonar (~1668- ~1741) í Gvendareyjum" og um er fjallað1714. Þormóður var lærifaðir Galdra-Lofts.
Tilvísun: Ísl. æviskrár V, 187).
Svanur II fórst á norðanverðum Faxaflóa og var þá í eigu Kveldúlfs hf.
Íslenskar æviskrár V. 271, segja Ágúst Þórarinsson f. 1864, d. 1947 (bróður sr. Árna), verslunarstjóra hjá Tang, hafa keypt Tangverslun, en þó gerst stofnfélagi í flóabátsfélaginu. Sigurður, sonur Ágústar eignaðist síðan Tangverslunina og rak hana til 1966 undir sínu nafni. Húsið, sem stendur enn, var reist 1890.
Mynd af Ágústi Þórarinssyni: HeimildSarpur (opnast í nýjum flipa)
Hvammsfjörður:Vefurannalsvert.prismic.io (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)