Í Hásetaverkfalli var ei kjurt
Lag Einu sinni átti ég hest
Í Hásetaverkfalli var ei kjurtog verst á Steinbryggjunnifátt um rifnar spjarir spurtné sprungna vör á munni.
Heimildir og samhengi
Undirmenn á botnvörpungum (togurum) stofnuðu Hásetafélag Reykjavíkur haustið 1915. Formaður Jón Bach háseti, en aðalritari Ólafur Friðriksson ritstjóri.
Í nóvember 1915 setti félagið fram kröfu um að lifur yrði áfram talin eign áhafna en ekki útgerða, en lifur hafði þá stórhækkað í verði. Til verkfalls kom - hins fyrsta - í maí 1916 ,,og fylgdu stundum æsingar á mannamótum og kom einu sinni til stympinga á Steinbryggjunni".
Þegar verkfall hafði staðið á aðra viku slitu útgerðarmenn samningaviðræðum og auglýstu einhliða kauptaxta og skiptaverð á lifur og náðu að manna togarana. Verðákvörðunin var samkvæmt tveggja mánaða gömlu samkomulagi við háseta, sem þá var úr gildi fallið. Hásetar urðu að sætta sig við verðákvörðun útgerðarmanna. Þetta er árið sem ASÍ er stofnað og atvinnuveitendur eiga enn svo til alls kostar við launþega.
Heimild: Thorsararnir, bók Guðmundar Magnússonar, bls. 95. Á bls. 192 kemur fram að 22 ár líða þar til vinnulöggjöf er sett hér eins og á Norðurlöndunum enda hafi í ASÍ verið mikil andstaða við alla vinnulöggjöf.
Átök voru innan verkalýðshreyfingarinnar og síðar togstreita Alþýðuflokks þar við kommúnista og voru (fyrirvaralaus) verkföll hluti af þeim innanbúðarslag. Á meðan var kjarabaráttan háð með hnúum og hnefum eins og á Steinbryggjunni 1916, Reykjavíkurhöfn 1923, Garnastöðinni í Rvk. 1930, og tvívegis 1932, Keflavík 1932, Bolungarvík1932, Siglufirði 1925 og 1932, Akureyri 1933 og Borðeyri 1934.
Þór Whitehead, Sovét Ísland, bls. 68: ,,ágreiningur um verkfallsrétt og starfsemi verkalýðsfélaga hafði áður komið upp víða um lönd ...og átti enn eftir að kosta hörð átök og mannslíf, þar á meðal í Svíþjóð 1931".
Streinbryggjan:
Vefurreykjavik.is (opnast í nýjum flipa)