Í Íslandssögu áður stóð
Lesið:
Í Íslandssögu áður stóðoss æðum rynni´ í kóngablóðöðrum fremri, gáfuð, góðGuðs útvalin þjóð.
Heimildir og samhengi
Kom út Íslandssaga Jónasar Jónssonar.
Guðmundur Hálfdánarson í Heimtur 2009, bls. 155: ,,..þjóðernissinnuð viðhorf eins og boðuð voru í Íslandssögu Jónasar frá Hriflu hafi blásið Íslendingum kapp í kinn á mikilvægum tímamótum í sögu landsins og hún hafi á þann hátt ýtt undir framtak þeirra og dug. Á hinn bóginn hefur verið bent á að löngu tímabært væri að endurmeta þessa söguskoðun”.
Á bls. 88 í bók Gunnars Þórs Bjarnasonar um Norðurálfuófriðinn segir: ,,Þjóðernishyggja var hin dulda námskrá skólanna. ...Menntakerfið var notað til þess að blása ungu fólki í brjóst þjóðernisást og trú á ágæti og yfirburði eigin þjóðar. Ísland var engin undantekning” - og nefnir dæmi.
Þjóðremban sem hratt af stað fyrri heimsstyrjöldinni varð ráðandi söguskoðun hér lungann úr 20. öld.
Bók Jónasar, bls. 108: ,,Síðan Íslendingar fengu hönd í bagga með stjórn landsins hefur þjóðin tekið meiri framförum á einum mannsaldri en á öllum þeim öldum samanlögðum, sem erlendir menn höfðu stýrt þjóðmálaefnum Íslendinga”.
En þarna er ekki allt sagt og þess þurfti e.t.v. ekki 1916, þegar einungis aldarfjórðungur var frá því að vistarskyldan var afnumin. Vissu flestir þá hverrar þjóðar þeir voru sem báðu um og settu lög og reglur, dæmdu og refsuðu og komu í veg fyrir mannréttindi og þróun atvinnuvega með ,,óvilja við allar nýjar tilskipanir" (Espólín) þegar stjórnin þó reyndi að blása í þá lífi frá miðri 18, öld. Sjá 1751, 1777 og 1887.
Gunnar Þór Bjarnason: Þegar siðmenningin fór fjandans til, bls. 15, upplýsir að hagvaxtarskeið hafi byrjað á Íslandi um 1890 eftir að tekin var upp fríverslunarstefna í evrópu sem meirihluti Alþingis var lengi andvígur - sjá 1855.
Hér, við 1855, eru rakin viðhorf íslenskra forvígismanna til frjálsrar verslunar fram til þess tíma.
Um það sem Jónas þegir má t.d. lesa í bók Guðmundar Jónssonar frá 1981, Vinnuhjú á Íslandi, svo sem bls. 23: ,,Vanþroski atvinnuveganna ...átti að nokkru leyti rætur að rekja til stéttarhagsmuna bænda".
Það sem Íslandssaga Jónasar lætur ósagt um óskabörn hans og þjóðarinnar verður réttlætt með því að satt megi kyrrt liggja 1916, þegar fullveldi er í augsýn og söguefnið á að vera við barna hæfi. (1701). En varla öld síðar.HeimildForlagið (opnast í nýjum flipa)
Jónas átti sjálfur eftir að ,,stýra þjóðmálefnum" og koma mörgu góðu til leiðar, en það gat kostað æru, fé og frama í kyrrstæðu þjóðfélagi að berjast fyrir mannréttindum, síma, vatnsveitu, rafmagni, sjúkrahúsum og mennta)skólum, hvað þá kvennaskólum (1874).
Einar Laxness eignar öðrum heiðurinn: Íslands saga I, 145: ,,Hin rómantísku viðhorf gagnvart íslenskri sögu og hetjutímabili fornaldar eins og því er lýst í Íslendingasögum eru að miklu leyti runnin frá Arngrími lærða og hafa verið ráðandi meðal erlendra menntamanna og jafnvel íslenskra fræðimanna til skamms tíma”.
Sbr. og Óskar Halldórsson, Bókmenntir á lærdómsöld, bls. 67: ,,...menningargildi höfðu ...deilurit Arngríms lærða ...til að mótmæla óvönduðum staðhæfingum um Ísland, sem birst höfðu í erlendum fræðiritum".
Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar II, telur framfaratímabilið byrja með konungsheimsókninni og þjóðhátíðunum 1874, sem kveiktu mönnum nýjan kjark í brjóst.
Klemenz Jónsson: Grund, útg. 1920, bls. 213, tekur sama pól: ,,Bæði ég og aðrir höfum fullyrt það í ræðu og ritum, að síðan Ísland fékk stjórnarskrá 1874, hafi það tekið meiri framförum en allar aldirnar áður til samans”. (Stjórnarskráin 1974 var nær samhljóða þeirri frönsku og dönsku og stöðulögunum 1871, sem tóku gildi 1873og allt ætlaði að æra en mest þá sem ekki höfðu lesið hana - segir Gísli alþm. Jónsson, sjá hér 1873.
Axel Kristinsson, Hnignun, 237: ,,...nútímavæðing landsins heppnaðist ágætlega þrátt fyrir allt og það má sennilega þakka þeim ... innviðum landsins, sem byggðir voru upp á meðan það var hluti af Danaveldi, einmitt á þeim tímum sem hefðbundið er að kenna við eymd, niðurlægingu og hnignun”.
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
Um fræknleik Íslendinga er Njáluhöfundur sammála Jónasi frá Hriflu. Próf. Árni Magnússon (1663-1730) segir (efnislega) um Íslendingasögur að í þeim séu Íslendingar upphafnir á heimskulegasta hátt og þeirra kostir, eins og þeir væri öllum þjóðum fremri. Framar öðrum hefur Njáluhöfundur verið blygðunarlaus þar í mörgum stöðum - (utanför Hrúts, Gunnars og Þráins telur Einar Ólafur Sveinsson, bls.155 í Njálsbúð).
,,Die Überhöhung der eigenen Nation führte immer häufiger zur aggressiven und hasserfüllten Ausgränsung jener die nicht Teil von ihr waren. In den USA erreichte das Lynching (aftökur án dóms og laga) einen Höhepunkt, die Schwarzen wurden wieder fast vollständig politisch entrechtet (réttlausir), in Deutschland, Osteuropa un Frankreich stieg der Antisemitismus, es war das Zeitalter der Imperialismus und der Nationalismus".
Vefurspiegel.de (opnast í nýjum flipa)
Bróðursonur Jónasar Jónssonar, Jónas Kristjánsson, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar á Íslandi ritaði bókina Söguþjóðin í þeim tilgangi að rétta af þjóðrembinginn í Íslandssögu frænda síns. Hann segir í formála ,, ...Í baráttunni fyrir frelsi landsins hentaði vel að kenna útlendum valdsmönnum um bölið og eymdina sem yfir okkur gekk ... En nú þarf ekki lengur að skrifa svona þjóðleg áróðursrit ... það var ekki erlend áþján, heldur eldgos og hafísar hallæri og farsóttir sem drápu Íslendinga á fyrri öldum".