Árið 1714

t.d.

3 vísur frá árinu 1714
  1. 1714Lag: Fljúga hvítu fiðrildin

    Svan und Látrabjarg er bar

    betra sýndist þegja um
    að bregða fyrir þótti þar
    Þormóði' í Gvendareyjum.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Viðauki Fitjaannáls II, 390: ,,..hrakti vicelögmanninn, Odd Sigurðsson, á sínu stóra skipi, Svan, með mönnum og góssi, frá Búlandshöfða undir Látrabjarg…

    Hlusta
    LátrabjargGvendareyjar+1
  2. 1714Lag: Fljúga hvítu fiðrildin

    Berjast vetur, vor og haust

    um völdin ríkar ættir
    Oddur dæmir launalaust
    þá Lárus Gottrúp hættir.

    Við 1695 er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m. Viðauki Fitjaannáls II, 390: ,,16. Julii afstóð Laurits (Gottrup) lögmaður lögmannsembættisþjónustu við vicelögmanninn Odd Sigurðsson, skyldi þó behalda…

    Hlusta
    Laurits Gottrup og frú
  3. 1714Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Pétur Bjarna bein upp gróf

    að batna gæti frúnni
    en fyr'ir því hvergi höfum próf
    að honum yrði að trúnni.

    Fyrir meðmæli Magnúsar Arasonar (1728) sem staddur var í Kh. lýkur með konungsbréfi 7. júlí beinamáli Péturs Bjarnasonar í Tjaldanesi, sem 1708 gróf upp kjálka vinnukonu sinnar, sem legið hafði 7 ár í kirkjugarðinum á…

    Hlusta
    Staðarhólsdalur