Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1905
1905
1905

Orð um smjör- og ostadalla

Hljóðbrot0:00

Lag Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

OOrð um smjör- og ostadallaollu reiðibálibændum þótti heldur hallaHalldór réttu máli.

Skrælingjasýningin dilk sinn dregurdanskt ei kunnum metaorð sín Halldór illa veguroní sig má éta.

Glúmur Gylfason · 1905

Heimildir og samhengi

Einar Laxness, Íslands saga II, bls. 86: ,,Þegar sauðasölu lauk, 1896, komust bændur í mikla erfiðleika með afurðir sínar; var nokkur bót á því ráðin með stofnun rjómabúa, sláturhúsa ... og vandaðri verkun saltkjöts til útflutnings”.
E. L. Bls. 212: ,,Smjörframleiðsla rjómabúanna var mikil nýung og aðalútflutningsvara bænda ásamt saltkjöti og ull”.

Í Samvinnu á Suðurlandi, 1, bls. 123 til 197 ritar Guðjón Friðriksson um rjómabúin þar, sem skiptu tugum frá aldámótum til þess er Mjólkurbú Flóamanna var stofnað 1929. Baugsstaðabúið var þó rekið til miðrar aldarinnar 20. Þ

Bjarni Guðmundsson, Halldór á Hvanneyri, bls. 20: ,,...að danskri fyrirmynd tóku bændur ...að koma sér upp rjómabúum ...það fyrsta ...sumarið 1900 að Syðra-Seli í Hrunamannahreppi. Um haustið hófst kennsla í mjólkurmeðferð á Hvanneyri. ...Búnaðarfélag Íslands, sem stofnað var 1899, gegndi veigamiklu hlurtverki í þeirri nýsköpun sem hafin var í sveitum landsins. ...Áhrifamesti maðurinn í forystu Búnaðarfélags Íslands upp úr aldamótunum var Þóhallur Bjarnarson, síðar biskup, föðurbróðir Halldórs Vilhjálmsonar" (skólastjóra Bændaskólans á Hvanneyri frá 1907).

Halldór Vilhjálmsson kom til Íslands 1905 eftir 5 ára búnaðar(háskóla)nám í Danmörk og ferðaðist á milli rjómabúanna fimmtán á Suðurlandi sem ráðunautur Búnaðarfélags Íslands. Orðræða hans, um húsakost, aðbúnað, hreinlæti og umgengni kallaði yfir hann reiði Sunnlendinga segir í fyrrnefndri ævisögu, bls. 38 - 39.
Þar kemur og fram, að hjá Ágústi Helgasyni í Birtingaholti hafi ferð Halldórs um Suðurland verið skipulögð. Með þeim hafi tekist samvinna og í bréfi til Ágústar 18. nóv. 1906 friðmælist Halldór - segir á bls. 39 í ævisögu hans. Þá er Halldór orðinn ráðunautur á Austurlandi og blöskrar heima- og útislátrun sem og söltunarvinna þar. Ritaði svo mergjaða lýsingu í blaðið Ingólf, - sjá1907.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Líkt og hér má lesa1876, eftir Ingunni frá Melum, var vakað yfir orðspori Íslands og því sem frá Dönum og ,,dönskum Íslendingum" kom tekið með varhygð.
Sjá Skrælingjasýninguna og símamótmælin hér þetta ár, 1905. Myndir í dönskum blöðum af holdsveikum Íslendingum særðu þjóðarstoltið, sjá1898:
Þjóðernishyggjan er farin að grafa um sig hér eins og í evrópu þar sem afleiðingarnar sáust 1914.

Kristleifur Þorsteinsson, Úr byggðum Borgarfjarðar II, 133:
,,Í byrjun stríðsáranna lögðust rjómabúin niður. Þá voru bændur yfirleitt hættir að færa frá og margir fyrir löngu ... meiri áhersla var lögð á að framleiða kjöt en smjör".

Vefurbyggdasafn.is (opnast í nýjum flipa)

Árnesingur, Sögufélag Árnesinga, Rit II, Lýður Pálsson, bls. 34:
,,Á 3. ártugnum störfuðu rjómabúin með hálfu afli. Útflutningurinn var miklu minni en á blómatíð þeirra, en innlendir markaðir voru sístækkandi fyrir smjör og skyldar vörur.
...Í rjómabúinu á Baugsstöðum í Stokkseyrarhreppi var starfrækt pöntunarfélag frá 1928 til 1969. ...smjörgerð var þar líka ...til 1948".

Guðjón Friðriksson ritar um rjómabúin í Samvinnu á Suðurandi l, bls. 123 til 197
Þar kemur fram að á fyrri styrjaldarárunum tók fyrir smjörsölu til Breta, en mikil eftirspurn og verðbólga rauf samstöðu bænda sem þá gátu í Reykjavík fengið betra verð með því að selja ,,beint frá býli".

Sjá 1896.

Hér, og í umfjöllun um 19. og 20. öld kemur rómantísk þjóðernishyggja við sögu.
Hvernig hún fluttist til Íslands með Kaupmannahafnarstúdentum, fjallaði Harald Gustafsson um á Íslenska söguþinginu 1997, sbr. Ráðstefnurit ll., bls. 110-111.
Úrdráttur: Í evrópu hafi iðnbyltingin leyst upp lögstéttaskiptingu gamla samfélagsins þegar ekki urðu skýr mörk á milli manna, en gamla bændasamfélagið á Íslandi hafi (skv. Gunnari Karlssyni (umdeilt)) verið nægilega einsleitt til þess að þjóðernishyggjan hafi fest rætur.

Myndir

Einnig frá árinu 1905

  • Bændur héldu á Hafsteins fund
  • Þjóðhollum landsmönnum þótti það píning
← 1905Þjóðhollum landsmönnum þótti það píning1906 →Friðrik áttundi tróð á trón