Árið 1905

t.d.

3 vísur frá árinu 1905
  1. 1905Lag: Berhöfðaður burt ég fer - Bj.Þ. 619

    Bændur héldu á Hafsteins fund

    um hábjargræðistímann
    brýndu raust með hest og hund
    ;.; og hrópuðu niður símann ;.;

    1. ágúst: Símamótmælin. Hópreið 240 bænda af Suðurlandi og úr Borgarfirði til Reykjavíkur. Vilhjálmur Þ. Gíslason: Blöð og blaðamenn, 244: ,,...miklar æsingar, söngur, lúðraþytur, ræðuhöld og kröfugöngur og sumir…

    Hlusta
    Hannes HafsteinSéra Stefán StephensenBjörn Jónsson, ritstjóri, ráðherra+3
  2. 1905Lag: Komdu og skoðaðu í kistuna mína

    Þjóðhollum landsmönnum þótti það píning

    og þá væri komið meira en nóg
    ef Íslandi skyldi á skrælingjasýning
    skipað með svertingjum og eskimó.
    ,,Koloniudstilling?”, kolómögu'legt!
    konunglegri' erum vér allir af slekt
    þess konar framferði þolir ei rýning
    þvílíkan dónaskap aldregi þekkt.

    Árni Heimir Ingólfsson, Saga tónlistarinnar, 459: ,,Árið 1889 var í París efnt til ,,heimssýningar". ,,.Inngangshlið ...var gríðarmikill járnturn sem kenndur var við höfund sinn, Gustave Eiffel, en sýningin var…

    Hlusta
    Knud ZimsenFjallkonanEskimói, Knud Rasmussen landkönnuður+11Myndband
  3. 1905Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Orð um smjör- og ostadalla

    ollu reiðibáli
    bændum þótti heldur halla
    Halldór réttu máli.
    1 erindi til viðbótar

    Einar Laxness, Íslands saga II, bls. 86: ,,Þegar sauðasölu lauk, 1896, komust bændur í mikla erfiðleika með afurðir sínar; var nokkur bót á því ráðin með stofnun rjómabúa, sláturhúsa ... og vandaðri verkun saltkjöts…

    Hlusta
    Halldór Vilhjálmsson, skólastjóri á HvanneyriRjómabúið BaugsstöðumKongl. Landbúnaðarháskólinn á Friðriksbergi í Kaupmannahöfn+5