Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1906
1906
1906

Friðrik áttundi tróð á trón

Hljóðbrot0:00

Lag Kindur jarma í kofunum - Bj.Þ. 618

FFriðrik áttundi tróð á tróntogari í smíðum heita skal Jónöndunum mistókst óperasjónAlliance, Dagsbrún og telefón.

Glúmur Gylfason · 1906

Heimildir og samhengi

Kongen er död! (Chr. IX.) Leve kongen! (Fr.VIII.).
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Margir helstu menn þjóðarinnar spiritistar. Fremstir fóru ritstjórarnir Einar H. Kvaran (1859-1938) og Björn Jónsson (1846-1912), og síðar prófessor Haraldur Níelsson (1868-1928).
,,Þessir andatrúarmenn", segir Halldór Laxness í Skáldatíma, bls. 229, ,,vilja ekki hlusta á neitt nema sannanlegar afturgaungur".
Páll Skúlason, Pælingar, 260: ,,...(hagnýtt) guðleysi á helstu rót sína að rekja aftur til 18. aldar þegar ...iðnbyltingin reið í garð ...trú á endalausar framfarir á sviði tækni. ...Í slíkum heimi verður allt ...að vera útskýranlegt ...eftir leiðum vísinda".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Öldin okkar segir frá misheppnaðri aðgerð andalæknis.
Hreyfing þessi barst frá Englandi.

,,Vera má að ýmsir ...sjái enga mótsögn, engan árekstur milli ...náttúrutrúar ...í líki anda- eða draugatrúar, og svo eiginlegrar trúar á Jesú Krist og kenningu hans. En þá stafar slíkt sennilega af því hversu illa við erum í rauninni upplýst um kristna kenningu, og hversu mikið skortir á að við við höfum tileinkað okkur fagnaðarerindið". (Páll Skúlason, Pælingar, bls. 262.)

AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Botnvörpungurinn Jón forseti, sem smíðaður var nálægt Glasgow, átti að afhendast í desember 1906, en snurða hljóp á peningaþráðinn og kom Forsetinn 22. janúar 1907. Alvöru togarar komu fleiri það ár, en stærstur var Jón forseti, 230 lestir, í eigu Alliance, félags sem 4 skipstjórar stofna, Halldór (1877-1966) í Háteigi, sem var skipstjóri á Forseta, og Kolbeinn (1879-1960), bræður séra Bjarna Þorsteinssonar, þjóðlagasafnara m.m. (1861), Jafet Ólafsson (1873-1906) og Magnús Magnússon (1872-1940) auk Thors Jensen (1925, 1937, 1947) og Jóns Ólafssonar (1868-1937), síðar bankastjóra Útvegsbankans. (1907, 1908, 1914).

Í mars sama ár, 1907, kom botnvörpungurinn Mars, 74 smálestir. Hjalti Jónsson (Eldeyjar 1894), skipstjóri og eigandi ásamt Jes Zimsen, Þórarni Olgeirssyni, ræðismanni, og fleirum, sem síðan bættu við skipunum Apríl og Mai.

Jón Forseti, slóð: Myndc8.alamy.com (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Stofnað Félag ófaglærðra verkamanna, Dagsbrún, nú Efling.

Um þessa Dagsbrún fjallar Snorri G. Bergsson frá bls. 13 í ..Roðinn í austri".

Sæsímastrengur til Seyðisfjarðar og loftlína þaðan til Reykjavíkur.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Hannes Jónsson, Endurminningar, bls. 94: ,,Þegar sími kom fyrir norðan trúði Árni á Mýri (Gauksm.?) því vel, að hægt væri að tala frá Lækjamóti suður til Reykjavíkur. En að segja honum að vírinn væri ekki holur, þýddi ekkert".

Símatæki árið 2025:

file:///C:/Users/Notandi/Downloads/105546691-2d89d8a9-a877-4aaf-8680-fc3936013fe2.avif (opnast í nýjum flipa)

Í Fjallkirkjunni III, 279, skrifar afi á Knerri Ugga (Gunnari Gunnarssyni): ,,...borin von að nokkur skepna af Guði sköpuð geti unað við (allt það) varsímaskrölt og skarkala".
Þarna er síminn nýkominn, en andstæðingar hans kvörtuðu undan hávaðaskvaldrinu sem bærist um loftin eftir símalínunum. Höfðu það reyndar til síns máls að í byrjun brýndu margir raustina þegar töluðu á milli landshluta. MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
v=k2cr3C3lKZA&list=RDBMtELsgMKtA&start_radio=1&rv=BMtELsgMKtAYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)



Myndir

Einnig frá árinu 1906

  • 7. apríl ei mun né má
← 1905Orð um smjör- og ostadalla1906 →7. apríl ei mun né má