Upplýstst hefur ekki neitt
Upplýstst hefur ekki neittum eldsvoðann á Bakkaei fékk því Margrét Möller breyttmargt þótt léti flakka.
Heimildir og samhengi
Guðmundur Daníelsson, Krappur dans - Jarðvistarsaga Jóa Vaff, bls. 178: ,,Frú Margrét Árnason ber það upp á þá tengdafeðga (Jóa Vaff og Ólaf Helgason, ts.) í bók sinni: ,,Auður og embættisvöld", 1917, að þeir hafi sjálfir brotið lásana og viljandi látið vöruskúra Ingólfs (Eyrarbakka) standa ólæsta um nætur í því skyni að ginna fátæka menn til innbrots og þjófnaðar, til þess að geta síðar kennt þeim um áformaðan húsbruna, sem sjálfur eiginmaður hennar (Ólafur Árnason) og fleiri hafi fyrirskipað í fjáröflunartilgangi".
Sama bók, bls. 161: ,,Þriðjudaginn 15. des. kl. 08 var barið á svefnherbergisgluggann ...hjá Jóhanni sölustjóra (Kf. Ingólfs, Eb.), ...kallað var inn að eldur væri kviknaður í verslunarhúsi Ingólfs."
Skv. sömu heimild brann húsið til ösku á tveimur tímum. Björguðust peningar, bókhald og nokkuð af vörum. Hús og vörur voru tryggð hjá tryggingarfélaginu ,,Norge". Söluvirði varanna mat Jóhann á 45 þúsund kr. en tryggingarfjárhæðin var 17 þúsund krónum lægri. Kf. Ingólfur á Stokkseyri átti vörurnar en Jóhann húsið. Þarna var Eyrarbakkakútibú frá Kf. Ingólfi sem hætta skyldi rekstri 1. janúar 1915 og hafði Jóhann, þ.e., Jói Vaff sölustjóri, gengið frá kaupum sínum á Ingólfi frá þeim tíma.
Forstjóri Ingólfs frá stofnun, 1907, var Ólafur Árnason (1863-1915), sonur hjónanna Svanlaugar Björnsdóttur og Árna Jónssonar (1831-1918) hreppstjóra og sveitarstólpa að Þverá í Hallárdal á Skaga.
Ólafur hafði komið til starfa við verslun Guðmundar Ísleifssonar á Háeyri 1892, sem varð gjaldþrota 1893.
Fyrrnefnd hemild, bls. 110: ,,var skoðun sumra sem næst stóðu Guðmundi Ísleifssyni að Ólafur Árnason hefði átt mikinn þátt í að setja verslun Guðmundar á hausinn með því að leika refskák og beita fjármálaklækjum. Aðrir benda á að Guðmundur hafi kunnað jafn mikið fyrir sér í þessum íþróttum".
Kf. Ingólfur, sem þarna lagði upp laupana var reist á rústum Stokkseyrarkaupfélags sem stórbændur í Árnes- og Rangárþingi stofnuðu til 1891 að fengnum ráðum sm. Einars Benediktssonar, skálds. (Sbr. 1888). Ólafur Árnason varð þar starfsmaður 1904.
Erfði þetta félag þau utan- og innanlandsviðskipti sem Kaupfélag Árnesinga (eldra) frá 1888 hafði áður haft enda sömu menn í aðalhlutverkum beggja félaga.
Skilinn var Ólafur 1909 að borði og sæng við Margréti Pálínu Árnason, f. Möller, dóttur Friðriks Möller, póstmeistara á Akureyri. Skilnaðurinn var að kröfu Margrétar sem grunaði mann sinn um græsku, sbr. bæklinginn fyrrnefnda, sem er skrifaður tveimur árum eftir lát hans.
Móðir Friðriks og föðuramma Margrétar Árnason, var Margrét dóttir séra Jóns Jónssonar á Grenjaðarstað og því systir Guðnýjar skáldkonu, sjá hér við 1836. Bróðir Margrétar Árnason var Ólafur Friðriksson ritstjóri m.m. - getið hér 1916 og 1924 - sem bjó í húsi systur sinnar, Suðurgötu 14, Rvk. í ,,Hvíta-stríðinu" um rússneska drenginn 1921.
FréttVísir (opnast í nýjum flipa)