Kaffi, síróp, konfekt greitt
Lag Farðu að sofa fyrir mig - Bj.Þ. 831
Kaffi, síróp, konfekt greittkaupmennirnir pantaenginn skildi í neinu neittnammið mátti ei vanta.
Heimildir og samhengi
Gunnar Þór Bjarnason, Þegar siðmenningin fór fjandans til, 183:
,,Vegna þess hve litlar kornbirgðir voru til í landinu í ágúst um það leyti sem þýskar hersveitir réðust inn í Frakkland 1914, ákváðu stjórnvöld að leigja skip til að sigla vestur um haf og kaupa matvæli og eldsneyti í Bandaríkjunum, hveiti, maís, haframjöl, hrísgrjón, kaffibaunir, kol og steinolíu. ...Tæplega 20% meira magn af kaffi fluttist til landsins árið 1915 en árið 1914 (stríðið byrjaði í ágúst '14), rúmlega 14% meira af sykri og sírópi og 37% meira af súkkulaði. Þjóðin borðaði ríflega 36% meira af innfluttum brjóstsykri og konfekti en hún hafði gert 1914. Kaffi og sykurinnflutningur hélt áfram að aukast”.
Þetta ber að skilja í ljósi langrar upptalningar Gunnars Þórs á bls. 34 á innfluttum (mat)vörum sem í boði voru frá aldamótum til 1914 þegar engin innflutningshöft giltu.
Bls. 293: ,,Í febrúar 1917 fór að bera á alvarlegum vöruskorti ...hófu yfirvöld að skammta nauðsynjavörur. Fyrstu skömmtunarseðlunum var úthlutað í Iðnó og voru 8 menn við afhendinguna og höfðu ekki við”.
Um miðja 19. öld var kaffi orðið algengur drykkur hjá alþýðu manna.
(Heimsins hnoss, bls. 80).