Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 20. öld
  3. 1915
1915
1915

Fertugt kjósa fljóð nú kann

Hljóðbrot0:00

Lag Fyrr var oft í Koti kátt

FFertugt kjósa fljóð nú kannfána prýða krossarAusturstræti að ösku branneldur, reykur, blossarvín- og hvalaveiðibannVélskóli og Fossarsvo enginn segja um oss kannað vér séum tossar.

Glúmur Gylfason · 1915

Heimildir og samhengi

Konur og hjú 40 ára og eldri fá kosningarétt og tóku – að vísu fáar - þátt í alþingiskosningum. AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Þetta sama ár fengu konur kosningarétt til Þjóðþingsins í Danmörk, en fyrst kosið eftir þeim lögum 22. apríl 1918. Til héraðsstjórna kusu konur þar fyrst 1908. Þýskar konur kusu fyrst til þjóðþings 19. janúar 1919, og náðu 5 kjöri, breskar 21. nóvember 1918. Árið 1877 fengu svartir karlmenn kosningarétt í USA.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Ísland fær þrílitan sérfána til heimabrúks, þjóðernissinnum til ama sem sáu í rauða litnum tengingu við Dannebrog.
Einu atkvæði munaði að fáninn varð þrí- en ekki tvílitur.
Bláhvítan fána notaði heimsborgarinn, skádið Einar Benediktsson í revíu sem sýnd var í Fjalakettinum 1895 og vildi síðan gera að þjóðfána ,,...djúp sem blámi himinhæða / hrein sem jökultindsins brún", en dökkbláa litinn lagði Matthías Þórðarson þjóðminjavörður til.
Kjartan Sveinsson (1901-1977) ritar 1974 og birtist í bókinni Afbrigði og útúrdúrar, bls. 287, ,,...Kristján X., Matthías og fleiri skyldu hafa eilífa skömm fyrir að klína rauða litnum úr Dannebrog inn í fánann".
Fánanefndin: Þórarinn B. Þorláksson, Ólafur Björnsson, Jón J. Aðils, Matthías Þórðarson, Guðmundur Björnsson (fremst).
AlfræðiVísindavefurinn (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Hótel Reykjavík og 11 önnur hús við Austurstræti brunnu 25. apríl, sjá:
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)
Vefurlemurinn.is (opnast í nýjum flipa)
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)
Fréttmbl.is (opnast í nýjum flipa)

Vínsölu- og hvalveiðibann frá 1/1 en það fyrrnefnda tóku fáir eins alvarlega og Bjarni fiskifræðingur Sæmundsson, sem setti tappa í flösku kl. 00.00 og tók úr aftur 1934.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Vefurvideo.corriere.it (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Vél(stjóra)skóli Íslands stofnaður og starfaði í Iðnskólahúsinu við Lækjargötu.
Vefurtskoli.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Komu gufuskipin ES Gullfoss og ES Goðafoss, fyrstu skip Eimskipafélagsins, stofnað 1914, sem mátti una við danskan forstjóra, en ekki ,,að driffjöður þess, formaður undirbúningsstjórnar og einn stærsti hluthafi yrði í stjórn ,,óskabarns þjóðarinnar” af því að hann var fæddur í Danmörk og var þar til fermingaraldurs" – er ályktun í ævisögu Thors Jensen. (1947).
Thor gaf þá Vífilsstaðahæli hlutabréf sín í félaginu. Hann kom til landsins 14 ára allslaus einstæðingur 1878, en varð faðir Thorsara, sem ásamt mágum sínum stjórnuðu síðar Eimskipafélaginu og stærstu fyrirtækjum á sjó, landi og í lofti sem og Sjálfstæðisflokknum. Þeir sátu mannsaldur í nær öllum lykilstöðum þjóðfélagsins. Einar Benediktsson, skáld, sagði í blaðagrein: ,,Hér hafa verið menn, útlendir að holdi og blóði, sem verið hafa hinir bestu Íslendingar ... hver mun hafa verið öllu stórvirkari í efnahagslegum fyrirtækjum Íslands á vorum eigin tíma og þar með nytsamlegri þjóðerni voru en t.d. Thor Jensen?” (Guðjón Friðriksson: Einar Benediktsson, I, 337).
Með stríðinu 1914-1915 margfaldaðist verð skipa, en samið var um skipakaup Eimskipa fyrir stríð.

Með frumstæðum aðferðum voru hvalveiðar reknar 1863 til 1872 frá Seyðisfirði og Djúpavogi af Bandaríkjamönnum fyrst, þá Dönum og Hollendingum.
Veiðiaðferðir endurbætti Svend Foyn frá Túnsbergi. Hann og aðrir Norðmenn voru við hvalveiðar og vinnslu á Vest- og Austfjörðum frá 1883, en 1. okt. 1915 bönnuðu lög hvalveiðar um tíu ár enda stofninn hruninn. Fluttu Norðmenn þá (1913) stöðvar sínar til Suður-Afríku og fóru nokkrir íslenskir verkamenn með. Sjá Ævisögu Afríkufarans, útg. 1937.
Ásgeir G. Ásgeirsson rak með Dönum hvalstöðvar á Seyðisfirði vestra frá 1897 en flutti til Eskifjarðar 1904. Þjóðverjar höfðu hvalstöð á Fáskrúðsfirði 1902-5.
FréttRÚV (opnast í nýjum flipa)

Stofnaður Vélskóli Íslands. Skírteini nr. 1 fékk Gísli Jónsson, síðar alþingismaður, (1914), sem í stríðinu, 1940, sigldi Frekjunni, 30 tn. vélbát frá Jótlandi til Íslands. HeimildSarpur (opnast í nýjum flipa)

Heimildir: Bændablaðið 11/2 2016 bls. 30;
Guðmundur Magnússon: Íslensku ættarveldin, bls. 183;

Sigurður Pétursson: Vindur í seglum;
Smári Geirsson: Stórhvalaveiðar við Ísland, Sögufélag 2015;

Guðjón Friðriksson, Einar Benediktsson, I, 337.

Myndir

Einnig frá árinu 1915

  • Heiðarlegir Húnvetningar
← 1914Upplýstst hefur ekki neitt1915 →Heiðarlegir Húnvetningar