Norðurálfa í bál og brand
Lag Í friði látinn hvíli hér - SB 275
Bílavísur
Norðurálfa í bál og brandá Belga réðist ÞýskalandBúlgaría sinn beislar ganden Bandaríkin urðu grand.
Hóta og skjóta eða saman sverjastsíst þó viti um hvað á að berjastþó einhvern veginn allir á það næmirað andstæðingar þeirra eru slæmir.
Heimildir og samhengi
Á bls. 88 í bók Gunnars Þórs Bjarnasonar um Norðurálfuófriðinn segir: ,,Þjóðernishyggja var hin dulda námskrá skólanna. Hermennirnir sem marseruðu glaðbeittir á vígvöllinn 1914 höfðu flestir farið í gegnum þessa kvörn. Menntakerfið var notað til þess að blása ungu fólki í brjóst þjóðernisást og trú á ágæti og yfirburði eigin þjóðar. Ísland var engin undantekning” - og nefnir dæmi.
Orðin frelsis- og ættjarðarást hafði hver þjóð um sjálfa sig, en nefndi sömu kenndir þjóðernisofstæki hjá öðrum.
Um skylt efni fjallar Þráinn Bertelsson í ,,Vinir og kunningjar" frá bls. 87 og kallar minnimáttarkennd, sem sér hafi tekist að vinna bug á með óbrigðulu geðlyfi: hroka, og kemur í beinu framhaldi af umfjöllun um viðhorfið til Dana, frá bls. 73.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Gunnar Þór Bjarnason, Þegar siðmenningin fór fjandans til, 69:
,,Þann 5. ágúst kom til fyrstu orustunnar á vesturvígstöðvunum. Það var við borgina Liege í Belgíu. Um 30 þúsund belgískir hermenn veittu þýska innrásarliðinu harða mótspyrnu, en urðu þó að játa sig sigraða 10 dögum síðar”.
Með miðveldunum, Austurríki-Ungverjalandi og Þýskalandi, börðust Tyrkir og Búlgarir gegn bandamönnum, er urðu að lokum 33 lönd í öllum heimsálfum.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)