Öll nú gerist Íslands saga
Lag Se den lille kattekilling
Öll nú gerist Íslands sagavið Eyrarsund um hríðóskabörnin uppi dagaá øen.wiktionary.org (opnast í nýjum flipa)lstue hjá Hviid.
Heimildir og samhengi
Sverrir Kristjánsson, Ritsafn I, 122: ,,...1829-1851. Þegar horft er um öxl til þessara ára, þá verður að játa, að saga landsins var farin úr landinu sjálfu. ...Saga landsins gerðist að mestu úti í Kaupmannahöfn, ekki aðeins í þeim skilningi, að allar æðstu stjórnarstofnanir væru þar staðsettar og allar ákvarðanir teknar þar um stjórn lands og þjóðar í stóru og smáu, heldur var baráttan fyrir heimflutningi íslenskrar landsstjórnar, fyrir heimflutningi íslenskrar sögu, háð að miklu leyti í Kaupmannahöfn".
Sverrir Kristjánsson, Ritsafn III, 114: ,,Þá voru Íslendingar ekki orðnir þátttakendur í hraða tímans. Þeir áttu engin samgöngutæki nema fætur sjálfra sín og hesta sinna og kunnu hvorki að spenna hest fyrir plóg né vagn ...bundu ljáinn við orfið með nautsólum ...ekkert blað var til í landinu. Aldrei fyrr munu Íslendingar hafa fundið svo mjög til þeirra tengsla er bundu þá við Evrópu sem á því tímabili í sögu vorri, er hófst um 1830 og lauk með þjóðfundarárinu 1851".