Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1839
1839
1839

Blessan hefur og bölvan þótt

Hljóðbrot0:00

Lag Veik er mundin - Bj.Þ. 915

BBlessan hefur og bölvan þóttbandið vista:,,Ei skal lengur en eina nóttað öðrum gista”.

Glúmur Gylfason · 1839

Heimildir og samhengi

Skylduvistráðning hjá bónda var skipuð með lögréttusamþykkt 1404 eftir pláguna fyrri, þegar fólki fækkaði mjög og miðuðu við Maríumessu á vori, 3. maí. (Sjá 1700). Vistarskyldan síðan ítrekuð í Píningsdómi 1490.
Í harðindunum 1783 hertu stiptsyfirvöldin hömlur á umferð og þurfti þá vegabréf sýslumanns og vitnisburð prests að fengnu leyfi vistarbónda til ferða í aðrar sýslur. Bæjarfógetinn í Rvk. auglýsir 1839 aðkomnum þurfamönnum að þeir séu ekki frjálsir ferða sinna en hefur e.t.v. jafnframt ætlað að forða fátækum Víkverjum frá gestanauð.
Stórbóndasonurinn, sr. Tómas Sæmundsson (1807-1841), á Breiðabólsstað, Fljhl., besta brauði Íslands, fagnar þessum tíðindum í Fjölni 1840: ,,Aldrei veit ég sýslumenn hafa betur orðið samtaka í að hafa upp lausamenn og stemma stigu fyrir slíkri varmennsku, en á seinasta vori”. Sjá 1863. Sverrir Kristjánsson, Með vorskipum, 147: ,,...dánarbú hans (Sæmundar b. Eyvindarholti) var metið á 8.000 rd.". Sæmundur var Ögmundsson pr. Krossi, Landeyjum, Högnasonar prestaföður, sjá 1760.

Á eymdartíð Napóleonsófriðarins, í mars 1806, lét bæjarfógeti lesa auglýsingu af prédikunarstól Dómkirkjunnar, sem skipaði öllu utansveitarfólki að hafa sig burt fyrir fardaga og bannaði húsráðendum að hýsa utansveitarfólk án síns samþykkis.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

Heimildir og tilvísanir:
(Árni Óla, Reykjavík fyrri tíma, 514). Sjá og 1803.

Myndir

Einnig frá árinu 1839

  • Skemma þau engan, skagfirsk gen,
  • Öll nú gerist Íslands saga
← 1838Svaramaðurinn sýndist þar1839 →Skemma þau engan, skagfirsk gen,