Skemma þau engan, skagfirsk gen,
Lag Mangi raular, músin tístir - Bj.Þ. 903
Skemma þau engan, skagfirsk gen,skylt er að muna' að í ártil vor kom frá Thorvaldsentorgætur skírnarsár.
Heimildir og samhengi
Settur upp í Dómkirkjunni í Reykjavík skírnarsár frá Albert Thorvaldsen (1770 -1844) sem hann gerði og gaf að tilhlutan Fjölnismanna.
Albert fæddist, nam og dó í Kaupmannahöfn, en starfaði 40 ár í Róm. Móðir hans, dönsk, hét Karen Dagnes, en Gottskálk Þorvaldsson, faðir hans, var prestssonur frá Miklabæ í Skagafirði, er vann sem myndskeri í Kh.
Tilvísun: Ísl. æviskrár; séra Þórir Stephensen, Dómkirkjan í Reykjavík, bls. 124 í fyrra bindi.
Saga frá Skagfirðingum I, bls. 96, segir að 1762 hafi ,,andast Þorvaldur prestur Gottskálksson að Miklabæ, og var hann faðir Gottskálks er utan fór og kvæntist þar og átti Bertel Thorvaldsen fyrir son, er mikils var metinn í hverju landi fyrir bílætahögg, svo að engir í Rómaborg eða annars staðar gjörðu betur en ná honum".
Listamaðurinn Thorvaldsen gekk á Ítaliu undir nafninu Alberto, en í Danmörk Bertel.
Antico Caffé Greco hjá Spönsku tröppunum í Róm stærir sig af að BT hafi verið þar einn frægra fastagesta.
Sbr. eftirfarandi tilvitnun í Wikipedíu:
,,The café was named after its GreekWikiwand (opnast í nýjum flipa) (Greco in Italian) owner, who opened it in 1760.[1]Wikiwand (opnast í nýjum flipa) Historic figures including StendhalWikiwand (opnast í nýjum flipa), GoetheWikiwand (opnast í nýjum flipa), Arthur Schopenhauer, Bertel ThorvaldsenWikiwand (opnast í nýjum flipa), Mariano FortunyWikiwand (opnast í nýjum flipa), ByronWikiwand (opnast í nýjum flipa), Franz LisztWikiwand (opnast í nýjum flipa), KeatsWikiwand (opnast í nýjum flipa), Henrik IbsenWikiwand (opnast í nýjum flipa), Hans Christian AndersenWikiwand (opnast í nýjum flipa), Felix MendelssohnWikiwand (opnast í nýjum flipa), WagnerWikiwand (opnast í nýjum flipa), LeviWikiwand (opnast í nýjum flipa), María Zambrano[2]Wikiwand (opnast í nýjum flipa) and even CasanovaWikiwand (opnast í nýjum flipa)".