Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 19. öld
  3. 1840
1840
1840

Ljúka allir lofsorði á Pétur

Hljóðbrot0:00

Lag Bílavísur

LLjúka allir lofsorði á Péturlaglegt þykir hversu sungið geturog svo hefur hann spilað vel í veturað varla hefði páfinn gert það betur.

Einhvern veginn​ orgellaust​var áður fyrrum​ messað​vetur, sumar, vor​ og haust​af vanbúnaði​ blessað.

Glúmur Gylfason · 1840

Heimildir og samhengi

Pípuorgel kemur í Dómkirkjuna, kostaði 518 rd. (1846 seldu kaupmenn á Hofsósi 5 potta af brennivíni á 1 rd.). Eiríkur Eiríksson (1794-1859), hringjari og grafari, varð þá einnig orgeltroðari fyrir 6 rd. á ári. Fyrsti organistinn, Pétur Guðjónsson (1812-1877) tekur þar til starfa jafnframt sem skólastjóri barnaskóla í Rvk., segir Kennaratalið (sjá 1848). barnaskóli þessi hafði starfað síðan 1831 og naut rekstur hans Thorkelísjóðsins). Pétur staðfærði þ.e., setti íslenskan texta við messutón eftir Jóhann Wiberg, þýskan kantor við Frúarkirkju í Kaupmannahöfn, sem sá hafði gefið út 1832 í 35 blaðsíðna kveri, Messe Melodier, sem finna má á Landsbókasafni. Myndin er af blaðsíðu úr kveri J. Wibergs.

Frá 1934 er farið að kenna tónlag þeirra Wibergs og Péturs frá 1832 (1840), við Sigfús Einarsson f. 1877, sem þá jók það að þörfum, og raddsetti fyrir fjórradda blandaðan kór. Þá – ef ekki fyrr – viðtekin skoðun að væri lúterskt tónlag (M. Lúther d. 1546) en messuhefðin fyrir 1840, frá siðbótarfrömuðinum, Guðbrandi Þorlákssyni skv. Grallaranum 1594, væri kaþólsk. (sjá 1913).
Þessi söguskoðun kom m.a. fram í harðri blaðagagnrýni 1960 á að séra Sigurður Pálsson á Selfossi syngi messur með textum og tónlagi þess kaþólska Grallara, en þar svarar söfnuður presti en ekki fjórrada kór. Eins og sjá má hér við1563, þá var ein (sið)breytingin sú,1551, að söfnuður skyldi syngja og svara presti. Meðfram var það vegna þess að þegar klaustrum var lokað hvarf scola cantorum, þ.e., kórar æfðra klausturbúa sem sungust á við prest.
Sjá enn fremur um messur sr. Sigurðar Pálssonar: Gunnlaugur A. Jónsson, Andvari 1998, bls. 32.

Þórir Stephensen, Dómkirkjan II, bls. 176: ,,...1934 komu út Messusöngvar ...sem Sigfúsi var falið að semja (svo) við texta Helgisiðabókar sem kom út sama ár. Þau lög eru byggð á þeirri hefð sem fyrir var og kennd er við danska (svo) tónskáldið Wiberg".

Heimildir m.a. Þórir Stephensen, Saga Dómkirkjunnar í Rvk.
Messe - Melodier, Johannes Wiberg, Kjöbenhavn 1832.

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa).

Myndir

← 1839Öll nú gerist Íslands saga1841 →Bjarni og Tómas gerast grannar