Í Skálholtspiltum þá gólu garnir
Lag Þú komst í hlaðið
Í Skálholtspiltum þá gólu garnirei gat Jón Þorkelsson setið hjáþær álitlegustu væru varnirað vitja kóngs og í borðið slá.
Er gistu að Hólum þeir Harboe báðirþá hræddist tóran úr prestunumer nokkrir alls- varla voru gáðirog væntu hremminga' af gestunum,
Í sumum fundu þá enga akkaþótt ættir rækju til geistlegs standsuns hittu Steina á Staðarbakkaer stefndi ekki til Andskotans.
Heimildir og samhengi
Ludvig Harboe sendur 1741 með biskupsvald og ferðaðist um landið og kynnti sér kristnihald og kunnáttu presta til 1745.
Harboe varð biskup til Niðaróss og síðar Sjálands.
Ferðin var farin að undirlagi Jóns Thorchiliusar - sjá 1734og 1736 - sem var með í för og þótti fáum aðlaðandi. Menn vissu að hann hafði farið utan1736 ósáttur við ástand kirkjumála og áttu von á hörðu.
Á Hofsósi gerði skríll hróp að þeim við komuna til landsins. Harboe kunni hins vegar mannleg samskipti og fór mýkri höndum um presta en þeir áttu von á.
Einn fárra heittrúarpresta hérlendis var sr. Þorstein Pétursson á Staðarbakka og gerði Harboe hann að varaprófasti og prófdómara stúdenta á Hólum. Prófasturinn á Melstað, Ormur Bjarnason, var lítt verkfær sökum elli.
1746 kom húsagatilskipunin í kjölfarið og þar var ekki farið silkihönskum um almúgann, og sumir prestar og húsbændur ekki ósáttir við að fá þann vönd í hendur. Heimildir: m.a. annálar. (1742, 1743, 1744).
Torfi K. Stefánsson Hjaltalín í Sögu Biskupsstólanna, 620:
,,Segir Harboe að Steinn biskup hafi gert staðinn (Hóla) að umrenningabæli og sjúkrahúsi. Þá var skólinn í mestu vanhirðu ...byrjaði í nóvember og endaði í apríl með mörgum mislöngum fríum á milli. Kennsla hafi staðið mest í 4 mánuði. Engin skólareglugerð væri til, skólameistari ekki mjög starfi sínu vaxinn og heyrarinn, konrektor, mesti óróaseggur. Kennslugögn væru bágborin og sundurleit. Nemendur lægju mestan hluta árs í leti og ómennsku og haldi því áfram eftir útskrift. ...Þá var Harboe látinn dúsa í mjög gisinni kompu í prenthúsinu sem var sex fet á breidd og svipuð á lengd. Maturinn var ógeðslegur að hans mati og stofur lélegri en hjá fátækasta bónda ...og fletin væru eins og í tugthúsum ytra".