Örlög vor jarðnesku einn hefir skapt
Lag Dvel ég í Draumahöll
Örlög vor jarðnesku einn hefir skaptenginn þau kann umflýjaNicolaus Magnæus má hafa haft,,mala concientia”tóbaks- hann dósirnar tók eigi meðtímdi ekki að láta þær grotnaá Þingvöllum oft hefur annað eins skeðþá ótugtir fengu að blotna.
Heimildir og samhengi
Annálar V, Íslands Árbók:
,,Það skeði á alþingi um sumarið að Nicolaus Magnússon, sýslumaður í Rangárþingi, fór úr rúmi sínu eina nótt og óð yfir Öxará. Var með hönum ungur maður... sem vildi hafa gætur á hönum ...og kallar menn til hjálpar... Fundu þeir þá á gjábarmi fyrir norðan Þingvallatún silfurdósir hans ...réðu þar af að hann mundi hafa kastað sér í gjána hvað og reyndist ...hvort hann af fásinnu eður mala consientia í vatnsgjána hefur ráfað veit guð. Samt var hann grafinn í kirkjugarði og héldu erfingjar góssi hans”.
Nikulás Magnússon var geðhvarfasjúkur skv. lýsingu annála, en 4. ættliður frá Guðbrandi biskupi Þorlákssyni í beinan karllegg (M. Benedikt, Páll, sjá 1633, 1704). Þeir sem tóku líf sitt sjálfir urðu ekki kirkjugræfir fyrr en 1867, en hér var gerð undantekning.
mala consientia: slæm samviska.