Fara beint í efni
Annálsvert
Um AnnálsvertHafa samband
Höfundur og ábyrgðarmaður: Glúmur GylfasonUm vefinn · Ábendingar · Vefsmíði: Codelab
Allar vísur
  1. Annálsvert
  2. 18. öld
  3. 1741
1741
1741

Hér liggur hann Oddur í Leiru

Hljóðbrot0:00

Lag Leslie Sarony - Rhymes (1932)

MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)

HHér liggur hann Oddur í Leirusem lögmaður var með meiru,hermi ekki parhvernig hann varað hann taki ekki´ upp á fleiru.

Glúmur Gylfason · 1741

Heimildir og samhengi

Við 1695er gerð grein fyrir Oddi Sigurðssyni, ætt og uppruna m.m.

,,Morguninn 5. ágúst 1741 fannst Oddur (Sigurðsson fv. lm.) örendur í rekkju sinni (að Leirá). Hafði hann gengið alheill til sængur um kvöldið og enginn heyrt til hans um nóttina.
Gaus sá kvittur upp seinna, að sveinn hans, sem þá var, Bjarni Eiríksson, hefði hert að honum hálsklútinn þar til hann kafnaði og hafa menn þá líklega þótzt sjá þess einhver merki, en Bjarni þessi var mesti óþokki svo menn trúðu honum til alls hins versta og hefir kannske ekki þurft meira til að koma þessari sögu af stað ...hann (Oddur) var að jafnaði einkar óheppinn í vali sveina sinna. Þeir voru margir misendismenn ...Bjarni Eiríksson var alræmdur óþokki ,,óhófsamur, þjófgefinn, lýginn galdrasnápur”.
Þetta segja Árb. Espólíns IV, 101; Jón Aðils: Ævisaga Odds 270n, 275.

Annar sveinn Odds var Einar Illugason. Íslenskar æviskrár V. 392: ,,Einar var lengi í þjónustu Odds lögmanns Sigurðssonar, lenti síðan á flækingi, kom sér illa og átti deilur við ýmsa, komst til Noregs ...gerði þar ýmislegt fyrir sér, var dæmdur 6. apríl 1731 til ævilangrar þrælkunar í járnum í Aggershúskastala, slapp þó aftur til landsins ...átti enn málaferli sem komu til alþingis".

Sjá og hér: 1695n, 1708n, 1712 til 1718, 1720n, 1724n, 1726, 1733n.

Myndir

Einnig frá árinu 1741

  • Á Hólum lítt við lærdóm setið
  • Í Skálholtspiltum þá gólu garnir
← 1741Á Hólum lítt við lærdóm setið1741 →Í Skálholtspiltum þá gólu garnir