Árið 1734

t.d.

4 vísur frá árinu 1734
  1. 1734Lag: Kálfar tveir í kúamynd

    Prestar mátu prófast slys

    pukra ei né leyna
    að ,,óumventan innvortis”
    óskuðu sér Steina.

    Séra Þorsteinn Pétursson (1710-1785) útskrifaðist þetta ár stúdent úr Skálholtsskóla ,,óumventur innvortis” eins og hann orðar það í ævisögu sinni og gagnrýnir að viðgengist. Þetta er sama árið og píetistinn Jón…

    Hlusta
    StaðarbakkakirkjaLudvig Harboe SjálandsbiskupLaugarbakki í Miðfirði
  2. 1734Lag: Hani, krummi, hundur, svín

    Sýslumanna krenkjast kjör

    - kætist flokkur bófa -
    áður höfðu handtök snör
    og hengdu alla þjófa.

    Refsiréttur Norskulaga innleiddur á Íslandi með konunglegri tilskipun, Alþingisbók bls. 143. Norskulög lina ákvæði Jónsbókar um hengingar þjófa. Samkvæmt þeim skyldi hegna þjófum með þrælkunarvinnu og hegningarhúsvist,…

    Hlusta
    Þingvellir+3
  3. 1734Lag: Dvel ég í draumahöll

    Rektor Skálholtsskóla kærir

    og skeytir ei orð- um sporið:
    ,,ölmusupiltar ei ferðafærir
    föggur geti ei borið
    hinir fleiri' og feita bita
    fá og rífra skorið
    en ná ei á sér haldið hita
    horaðir um vorið".
    1 erindi til viðbótar

    Torfi Hjaltalín Stefánsson í Sögu Biskupsstólanna, 616: ,,...í bréfi til kennslumálanefndarinnar dönsku 1734 er til lýsing eftir Jón skólameistara (Thorchilius) á ástandi skólamála í Skálholti á árunum 1729-1733. Meðal…

    Hlusta
    Fangi í borgarastríði USA 1861-1865Skólavarðan, SkálholtiSkálholtskirkja Brynjólfs ~1652+2
  4. 1734Lag: Tryggða fækkar taugunum - Bj.Þ. 870

    Góu- hefur þrællinn þótt

    þungur í skauti vera
    fáir gull í greip hans sótt
    grand mátt þaðan bera.

    Af fenginni reynslu af illviðrum með skiptöpum á góuþræl voru margir formenn hættir að róa á góuþræl. Tók þá þetta ár ekki betra við en svo að yfir reið Suðurlandsskjálfti, einn með þeim hörðustu. Suðurlandsskjálftinn…

    Hlusta
    Þjórsá, IngólfsfjallVillingaholt í FlóaBrúará og Vörðufell séð frá Mosfelli