Altarisdúk af drottningu þáði
Lag Einn var að smíða ausutetur
Altarisdúk af drottningu þáðiDoddi í Reykjadalóðar er þetta Finnur fráðifrá honum reflinum stal.
Heimildir og samhengi
Séra Þórður Jónsson, (1698-1776) fékk Reykjadal 1728 með konungsveitingu og fyrirskipun til biskups, Jóns Árnasonar, að Þórð skyldi vígja, en því hafði biskup áður hafnað.
Síðar var Þórður sviptur embætti af klerkadómi, en settur inn aftur með hæstaréttardómi.
Á alþingi 1730 var skipuð nefnd til að skoða leyndarlim Þórðar vegna gruns um að hefði látið umskerast, sem kostað hefði hempuna.
Sagði af sér 1758 og dvaldist í Kaupmannahöfn og sótti heim höfðingja oftar en boðinn var og mælti á hebresku.
Kom sér í mjúkinn hjá drottningu sem saumaði honum altarisdúk til Reykjadals.
Þótti Finni biskupi það ofrausn og skipti á öðrum lakari.
Heimför Þórðar frá Kaupmannahöfn 1762 var ekki á hans áætlun, en ráðin með konunglegri fororðningu. (Ísl. æviskrár; Öldin átjánda).
Skoða mætti í þessu sambandi 90 sekúndur af eftirfarndi slóð:
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Bjarni Harðarson hefur samið sögulega skáldsögu um séra Þórð í Reykjadal, ,,Í Gullhreppum", sem út kom 2018. Bókin er sjálfstætt framhald sögu Harðar, Í skugga drottins.
Hér sést Bjarni með bókina um Þórð.