Fyrsta lærða ljósmóðir
Lag Einu sinni átti ég hest
Fyrsta lærða ljósmóðirlífsvonirnar glæddustsamt einhvern veginn, áður fyrrÍslendingar fæddust.
Heimildir og samhengi
Af vefsíðu Ljósmæðrafélags Íslands:
,,Merk tímamót og breytingar á inntökuskilyrðum og námi ljósmóðurfræði á Íslandi frá árinu 1761. Árið 1760 fól Danakonungur Bjarna Pálssyni landlækni, með embættisbréfi, að ,,taka eina eða fleiri siðsamar konur og veita þeim tilhlýðilega fræðslu í ljósmóðurlist og vísindum”.
,,Árið 1761 var ráðin ljósmóðir frá Danmörku, Margrethe Katrine Magnússen, til að sjá um klíníska kennslu.
Árið 1809 skrifaði Maddama Malmquist ljósmóðir í Reykjavík Jörundi hundadagakonungi bréf og kvittar fyrir skipun um að taka að sér kennslu ljósmæðranema. Hún leggur til að stúlkur komi úr hverri sýslu og læri í Reykjavík áður en þær séu skipaðar umdæmisljósmæður. Af þessu varð ekki". Vefurljosmaedrafelag.is (opnast í nýjum flipa)
Í leiðréttinga- og viðaukakafla Íslenskra æviskráa V, bls. 547 er eftirfarandi haft eftir Sigurjóni Jónssyni lækni:
,,Halldór Brynjólfsson biskup lét prenta á Hólum 1749 fyrstu ljósmóðurfræði á íslensku, Yfirsetukvennaskóla Buchwalds, er séra Vigfús Jónsson (biskupsbróðir, Finns) í Hítardal þýddi. Ritaði Halldór biskup einkennilegar tileinkanir og formála framan við, er bera tíðaranda þá fróðlegt vitni".
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Á bls. 533 í sömu bók, segir frá Þorsteini Þorleifssyni (1824-1882) lærðum járnsmið frá Kh., Húnvetningur sem gerðist Strandamaður og smíðaði þar fæðingatengur enda yfirsetumaður og heppinn í því sem og öllu sem hann fékkst við sem reyndar var á hverju því sviði sem þá þekktist.
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Um fæðingarhjálp fyrir daga lærðra ljósmæðra, sjá grein Baldurs Johnsen, læknis, á bls. 32 í Aftanskin, útg. af Sjómannadagsráði 1981.
Sjá bls. 20 í ritgerð Hilmars Garðarssonar, Saga Veðurstofu Íslands, útg. 1999: SkjalSkemman (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)