Fógeti kunni ei fyrir spá
Lag Augun mín og augun þín
Fógeti kunni ei fyrir spáforlögum ofurseldurfyrir Skúla fæti bráfjárpest, kaupmenn, eldur.
Vestra margt ku vitað enn.Er veður höfðu af kláðagamalreyndir galdramenngripu til sinna ráða.
Heimildir og samhengi
,,Kláðinn fyrri" eftir hrútainnflutning Hastfers að Elliðavatni í þeim tilgangi að bæta ullina sem Innréttingarnar fengu til vinnslu.
80 fjár drapst, - fyrst í Hjálmholti hjá sm. Brynjólfi Sigurðssyni 1761 (1736).
Hér er litið til þess að Vestfirðir sluppu við síðari pláguna á 15. öld, 1494-6, sem einhverjir trúðu að verið hefði vegna kunnáttu þeirra vestra sem hefðu varnað henni leiðar með forneskju á Snartartunguheiði þar sem skemmst er á milli Gilsfjarðar og Bitrufjarðar.
Sama varð uppi á teningnum í kláðapestinni fyrri, eftir 1761, enda náði kláðinn ekki vestur fyrir Gilsfjörð og þurfti þá ekki framar vitnanna við um kunnáttusemi Vestfirðinga / Strandamanna enda hennar getið í öruggri heimild, Njálu.
Ekki er þessari túlkun mótmælt í Vestfirska galdrasetrinu á Hólmavík.
Sumarið 2022 eru vestfirskir galdramenn e.t.v. enn á ferðinni samkvæmt Steinari Marberg Egilssyni, meindýraeyði, um lúsmý á Íslandi í Reykjavík síðdegis vísir.is:
,,Austur, suður, norður en ekki vestur ...
Vestfirðir eru ekki komnir inn en við vitum ekki alveg dreifinguna. Þetta byrjaði í Hvalfirðinum og Kollafirðinum".
Vestfirðingurinn, Guðmundur Gíslason Hagalín, lætur sveitunga sinn, Kristrúnu í Hamravík, útskýra hvers vegna Vestfirðingar séu hallir undir forneskju, - bls. 114: ,,við erum nú svona, þessi gamla slekt, sem uppalin er í heiðinni trú á kynngi og kynjaverur, hvað lengi hefur við loðað hér á þeim köldu Ströndum og víðar á þeim hrjóstruga og hrikalega vesturkjálka þessa okkar lands. Vegna stórra fjarlægða og eymdar amls og bardúss heima fyrir, höfum við ekki í herrans hús komið nema rétt sem naumast má duga til sáluhjálparvona - og ekki umgengizt hans orð í heimahúsum svo sem vera skyldi. ... Og enga höfum við kristindómsins uppfræðslu- fengið nema úr þessu stutta kapítulakveri sem við áttum að stagla fyrir konfirmeringu undir handleiðslu fákunnandi foreldra og eins gamals útkjálkaprests" (1598, 1609, 1611, 1612, 1625, 1681, 1685, 1800, 1870, 1805, 1892, 1893).
Á Vefurlandbunadur.is (opnast í nýjum flipa) segir um fjárkláðann fyrri 1762 m.a.: ,,Talið var að sjúkdómurinn hefði borist hingað til lands með hrút af spænsku kyni sem fluttur hafði verið inn frá Noregi.
Faraldur þessi breiddist út um Suður-, Vestur- og Norðurland en barst ekki til Vestfjarða og Norðaustur-, Austur- og Suðausturlands. Reynt var að lækna sýkina með böðunum en svo fór að lokum að smitað fé var skorið niður á kláðasvæðunum á næstu tveim áratugum og virtist faraldurinn hverfa í kjölfar þess".
Vefurlandbunadur.is (opnast í nýjum flipa)
Auk harðindanna 1751-57 olli kláðinn því að flytja varð inn ull til Innréttinganna á tímabili. Síðan brunnu 3 ullarvinnsluhús þeirra til kaldra kola í mars 1764.
Myndin er af Herdísarvíkur-Surtlu, sem náðist ekki í leitum og lá úti þrjá vetur í mæðiveikiniðurskurðinum á 20. öld. Var loks skotin á færi 1952. Hún var úr Herdísarvíkurhjörð Hlínar Johnson.
Hausinn skreytir vegg í húsi Sigurðar dýralæknis Sigurðarsonar á Selfossi.
HeimildFerlir (opnast í nýjum flipa)
1933 skyldi enn kynbæta sauðfjárstofninn og nú með karakúlfé. Voru fluttar inn frá Þýskalandi 20 kindur, 15 hrútar og 5 ær. Með þeim barst mæðuveikin, visna, garnaveiki og kýlapest. Enn sluppu Vestfirðir og sáu síðan öðrum landshlutum fyrir heilbrigðu fé.
Ágúst Jónsson á Hofi leysir frá skjóðunni, bls. 128: ,,...má þakka það úrræðum Matthíasar Helgasonar á Kaldrananesi, sem fékk einn karakúlhrútinn, ...en lét hann ekki ganga með öðru fé. Hrúturinn hafðist illa við ...þegar leið á vetur hafði hann engar vöflur á, skaut hrútinn og reri með hann út á sjó, þar sem hann sökkti honum á sextugt dýpi. Spegillinn birti teikningar af útförinni".