Árið 1762

t.d.

3 vísur frá árinu 1762
  1. 1762Lag: Einn var að smíða ausutetur

    Altarisdúk af drottningu þáði

    Doddi í Reykjadal
    óðar er þetta Finnur fráði
    frá honum reflinum stal.

    Séra Þórður Jónsson, (1698-1776) fékk Reykjadal 1728 með konungsveitingu og fyrirskipun til biskups, Jóns Árnasonar, að Þórð skyldi vígja, en því hafði biskup áður hafnað. Síðar var Þórður sviptur embætti af klerkadómi,…

    Hlusta
    Bók Bjarna Harðarsonar um Þórð í ReykjadalLouisa drottning Firðriks V.Reykjadalur (Upplifðu Suðurland)
  2. 1762Lag: Augun mín og augun þín

    Fógeti kunni ei fyrir spá

    forlögum ofurseldur
    fyrir Skúla fæti brá
    fjárpest, kaupmenn, eldur.
    1 erindi til viðbótar

    ,,Kláðinn fyrri" eftir hrútainnflutning Hastfers að Elliðavatni í þeim tilgangi að bæta ullina sem Innréttingarnar fengu til vinnslu. 80 fjár drapst, - fyrst í Hjálmholti hjá sm. Brynjólfi Sigurðssyni 1761 (1736). Hér…

    Hlusta
    Herdísarvíkur-SurtlaSkúli Magnússon, forstjóri Innrétttinganna+2
  3. 1762Lag: Einn var að smíða ausutetur

    Sjaldan drap sú kona kríu

    en kepptist við í törn
    því átta presta og önnur níu
    ól Guðríður börn.

    1. nóvember lést Guðríður Pálsdóttir, f. 1694, mdm. séra Högna Sigurðssonar (1693-1770), Breiðabólsstað í Fljótshlíð, 17 barna móðir, þar af urðu 8 prestar. Hún þótti læknir góður og gekk sú list í erfðir, t.d. frá…

    Hlusta
    Breiðabólsstaður í Fljótshlíð