Danaprins kemur, Dillon fer
Lag Hvað boðar blessuð nýárssól
Danaprins kemur, Dillon ferdóttur skilur hann eftir hérBernhöft til Knudtsons með krydd og ger,kökur og Vínarbrauð við smér.
Bakarinn sig býr að morgnibyrjar strax við morguns árhnoðar, bakar brauð úr korniBernhöfts nær tvö hundruð ár.
Heimildir og samhengi
Ferðuðust hér: Sir A. Dillon (1812-1892), írsk-enskur aðalsmaður er eignaðist dóttur með matmóður sinni, Sigríði Ottesen (1800-1878), og reisti henni hús að Suðurgötu 2 - nú á Árbæjarsafni - en yfirvöld heimiluðu ekki giftingu og talið að ættingjar hans ytra hafi beitt sér þar.
Danaprins, síðar Friðrik VII. (1808-1863), konungur frá 1848, ferðaðist út á Vatnsleysuströnd og allt norður til Mývatns.
VefurFacebook (opnast í nýjum flipa)
Sjá og Jón Helgason, Íslenskt mannlíf IV, 135.
Saga frá Skagfirðingum: ,,..kom (prinsinn) við á Akureyri og komst í kunnugleik við Wilhelminu Lever (1802-1879).
Hún var fríð sýnum og fagurlega á fót komin, vitur og blíð í viðmóti, en haldin heldur vergjörn og féll vel á með prinsinum og henni”, er þetta ár
,,keypti lóð úr Eyrarlandslandi og byggði þar lítið hús og rak þar verslun og var þá kölluð höndlunarborgarinna – sennilega íbúðarhús brauðgerðarinnar er brann 1903” - segir Klemens Jónsson í Sögu Akureyrar.
En Jón Hjaltason í Sögu Akureyrar I, 161:
,,1836 voru hús Wilhelminu fjögur, fjós og heyhlaða, tvö pakkhús, annað úr timbri, en hitt torfi, og íbúðarhús, virt á 1560 rd”.
Á bls. 167 í Sögu frá Skagfirðingum segir: ,,Mad. Vilhelmína var merkiskona sökum dugnaðar, greindar, örlætis og brjóstgæða við þá sem lítils máttu sín." (1863, 1868).
Mynd hefur fundist af Wilhelminu á efri árum, en á Wikipediu er mynd hennar teiknuð af Kristni Jóhannssyni og líkist núlifandi frænku hennar - sjá 1863, og hér:
Myndkonurogstjornmal.is (opnast í nýjum flipa)
Enn fremur:
HeimildTímarit.is (opnast í nýjum flipa):
AlfræðiWikiwand (opnast í nýjum flipa)
,,...árið 1834 keypti Wilhelmina Lever jarðskika úr landi Eyrarlands, byggði þar lítið hús og rak verslun. Þetta mun hafa verið lóðin Hafnarstræti 23.”
,,Faðir Vilhelminu var H. W. Lever, sá er kartöflubæklinginn reit, en móðir, Þuríður (1778 – 1815) Sigfúsdóttir, fyrri kona hans”. (Klemenz Jónsson, Grund, bls. 210).
Vefuradventures.is (opnast í nýjum flipa)
P. C. Knudtson, kaupmaður í Vík, byggði húsin á Torfunni við Bakarabrekku. Eitt þeirra með bakarofni. Hann réð bakara, T. Daniel Bernhöft frá Holtsetalandi, sem þá tilheyrði Danaveldi og með honum bakarasvein, J. E. W. Heilmann. 1845 keypti Bernhöft brauðgerðina af Knudtson. Nú er bakaríið á Klapparstíg 3, á horni Skúlagötu og kann að vera elsta fyrirtæki Reykjavíkur annað en Dómkirkjan.
Vefurbernhoftsbakari.is (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
MyndbandYouTube (opnast í nýjum flipa)
Halldór Laxness, Brekkukotsannáll, bls. 91: ,,Bakarí... var í raun og veru ekki hægt að líkja við annað en sjálfa Persíu að viðbættu hálfu Sýrlandi og parti af Konstantínópel einsog þessum stöðum er lýst í Úlfarsrímum. Enda vorum við (Álfgrímur og Garðar Hólm) ekki fyr komnir innfyrir ...en alheimssaungvarinn reif ofan hattinn og beygði sig allan, mér liggur við að segja í duftið, og mælti þetta eina orð: madonna".